Rafíþróttir

Dusty stríddi stórliðinu í upphafslotunum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
blast

Nýkrýndir Ljósleiðaradeildarmeistarar Dusty mættu stórliðinu Dignitas í seinni leik sínum í undankeppni BLAST Premier mótsins í CS:GO í dag. Jafnræði var með liðunum í fyrstu lotunum, en Dignitas sigldi fram úr og vann góðan sigur, 16-8.

Keppt var í borðinu Overpass. Dusty bannaði Nuke, Vertigo og Ancient, en Dignitas bannaði Dust2, Mirage og Inferno.

Eins og áður segir var jafnræði með liðunum í fyrstu lotunum og að 11 lotum loknum var staðan 6-5 fyrir Dignitas.

Dignitas tók þá völdin og komst í 9-6 áður en liðið náði afgerandi forystu í stöðunni 14-8 og vann svo að lokum öruggan sigur, 16-8.

Dusty hefur því lokið keppni á BLAST Premier, en liðið endar í neðsta sæti riðilsins. Hellslayers tryggðu sér sigur í riðlinum með sigri gegn Ecstatic fyrr í dag, en nú er það komið á hreint að Ecstatic og Dignitas mætast í ákvörðunarleik um annað sæti riðislins núna klukkan 17:00. 

Annað sæti riðilsins fylgir Hellslayers í undanúrslitin sem fara fram á morgun og úrslitin fara fram klukkan 18:00 annað kvöld.






×