Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin: Kristján og Tómas myndu eyða sumarfríinu í Inferno

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tómas Jóhannsson og Kristján Einar Kristjánsson veltu fyrir sér hvaða kort yrði fyrir valinu sem áfangastaður í næsta sumarfríi.
Tómas Jóhannsson og Kristján Einar Kristjánsson veltu fyrir sér hvaða kort yrði fyrir valinu sem áfangastaður í næsta sumarfríi. Stöð 2 eSport

Kristján Einar Kristjánsson og Tómas Jóhannsson, lýsendur Ljósleiðaradeildarinnar, leiddust út í áhugaverða umræðu fyrir viðureign Þórs og Kórdrenga í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í gærkvöldi.

Þeir veltu því þá fyrir sér hvaða kort í CS:GO yrði fyrir valinu ef þeir þyrftu að velja eitt þeirra til að eyða sumarfríinu sínu í.

„Inferno-mappið. Kjúklingar, ítölsk tónlist og allt bara yndislegt,“ sagði Kristján í upphafi innslagsins þegar ljóst var að viðureign Þórs og Kórdrengja myndi fara þar fram.

„Bara allt upp á 10,5. Alveg 100 prósent,“ svaraði Tómas.

Strákarnir ákváðu síðan að reyna að þylja upp allt sem má finna á kortinu. Vespa, skellinaðra, hjól og líkkistur voru meðal þeirra hluta sem strákarnir mundu eftir.

„Inferno hefur bara allt,“ sagði Kristján. „Ef ég væri að kaupa mér sumarfrí í eitthvað map í CS:GO. Það er góður klúbbur í Overpass, en ég hugsa að það yrði Inferno.“

Tómas tók sér aðeins lengri tíma í að velta þessu mjög svo mikilvæga máli fyrir sér, en var svo að lokum sammála kollega sínum.

Þessa skemmtilegu umræðu þeirra félaga má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Ljósleiðaradeildin: Sumarfrí í Inferno





×