Hér að neðan má sjá lokasókn KA-manna sem var vel heppnuð og endaði með skoti á lokasekúndunni, frá Einari Birgi Stefánssyni af línunni, en boltinn fór framhjá.
KA-menn voru því aðeins marki frá því að tryggja sér framlengingu en Haukar unnu 31-30. Allir leikir einvígisins enduðu með eins marks mun því áður hafði KA unnið 30-29 sigur á Ásvöllum en Haukar svarað með 23-22 sigri í KA-heimilinu.
Það verða því Haukar sem mæta ÍBV í undanúrslitunum sem hefjast á sunnudaginn, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fyrsti leikurinn er á Ásvöllum og hefst klukkan 18.
KA-menn, sem enduðu í 7. sæti Olís-deildarinnar, eru aftur á móti farnir í sumarfrí.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.