Vísir greindi frá skilaboðum Tómasar til kunningja síns árið 2014 þegar Tómas var staddur í Taílandi. Þar lýsti Tómas veru sinni þar ytra.
„Ein dásamleg 26 ára ca. 45 kg var að yfirgefa herbergið smokklaust. En byrjaði á nuddkonunni fyrr í dag, kvöldið er ungt, 20.21,“ sagði Tómas í skilaboðunum.
Kunninginn birti skilaboðin á Facebook á dögunum og hafa þau síðan farið í töluverða dreifingu manna á milli. Síðar í skilaboðunum, sem sjá má að neðan, segir Tommi ætla að „taka“ eina fyrir kunningja sinn.

Fréttastofa hefur reynt að ná tali af Ingu síðan í morgun vegna málsins. Guðmundur Ingi Kristinsson, formaður þingflokks Flokks fólksins, tjáði fréttastofu eftir hádegið að flokkurinn ætlaði að gefa sér góðan tíma til að ræða málið. Það væri sorglegt.
Inga Sæland, sagði í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á fimmta tímanum, að málið væri afgreitt hjá flokknum. Öll sem eitt stæðu þétt við bak Tómasar.
Viðtalið við Ingu má heyra hér að neðan.
„Á sama tíma og við höfum óbeit á þessu orðbragði, sem hefur flogið um samfélagið sem eldur um akur, milli tveggja vina fyrir átta árum síðan, vil ég segja að okkur ber öllum saman um það að hjá hverjum Tómas A Tómasson, kallaður Tommi, sængaði í Taílandi fyrir átta árum, að það komi okkur akkurat ekkert við. Ekki frekar en það komi nokkrum öðrum við,“ sagði Inga.
Hún segir málið persónulegt og vísar til þess að aðilinn sem kom skilaboðunum í dreifingu, með því að birta þau á Facebook og spyrja hvort sæmandi væri að Tómas væri þingmaður, væri nú látinn. Vinurinn hafi átt mjög bágt.
Tommi hafi kynnst ástinni á Taílandi
Henni finnst með ólíkindum að fjölmiðlar hafi látið sig málið varða.
„Þetta er persónulegt mál og ég er eiginlega steinhissa að þetta sé komið á þetta flug.“
Inga notaði tækifærið og deildi með hlustendum Bylgjunnar sögu af einni ferð Tómasar til Taílands þar sem hann hafi orðið ástfanginn af konu, sem hafi verið hans ást í sex ár. Sótt landið heim og hitt fólkið hans. Hún viti ekki í hvaða ferð hans til Taílands hann hitti þá konu enda hefði hún ekki spurt.
Inga segist eiginlega orðlaus. Þarna sé karlmaður sem hafi verið 64 ára á þessum tíma, einhleypur, og spyr hvers vegna samfélagið vilji skipta sér af því hjá hverjum Tómas sængi.
Segir Tómas dæmdan af samfélaginu
„Persónulega myndi ég segja að ég kæri mig ekkert um það að hafa alla þjóðina inni á rúmstokk hjá mér að segja mér hjá hverjum ég megi sænga eða ekki. Þetta er galið. Það er þannig sem mér líður.“
Hún segir Tómas vera dæmdan af samfélaginu fyrir eitthvað sem hann hafi alls ekkert gert, þ.e.a.s. að kaupa vændi.
Halló virk í athugasemdum. Og @BubbiMorthens. Íslenskur þingmaður sem misnotar vald sitt og aðstöðu gagnvart ungum konum í Tælandi er ekki einhver að stunda kynlíf úti í bæ. Hann er valdakarl að beita ofbeldi.
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) April 28, 2022
„Við stöndum þétt við bakið á Tomma.“
Þau Tómas hafi rætt saman og þannig hafi hún til dæmis heyrt af ástinni hans frá Taílandi til sex ára. Aðspurð segist hún þó ekki geta litið fram hjá orðfari Tómasar í skilaboðunum.
Menn slái um sig í samtali við félagana
„Við höfum óbeit á þessu orðfari. Þetta er ógeðslegt orðfar. Það verður ekki hægt að horfa fram hjá því.“
Hún sé þó eldri en tvævetur, verið til sjós og þar hafi ýmislegt verið látið falla karla á milli.
„Oft ansi gróft, og eiginlega ógeðslegt oft á tíðum.“
Hún vekur athygli á því að menn slái stundum um sig í tveggja manna skilaboðaskrifum. En málinu sé lokið af hálfu Flokks fólksins.
„Þetta eru endalokin hvað okkur varðar. Við komum ekki til með að gera neitt annað en að styðja okkar þingmann, og gerum það stolt hér eftir sem hingað til.“
Um það sé algjör einhugur hjá flokknum.