Valgeir Lunddal lagði upp | Ísak Bergmann kom við sögu hjá FCK Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. maí 2022 18:00 Valgeir Lunddal lagði upp í dag. Göteborgs-Posten Valgeir Lunddal Friðriksson lagði upp þriðja mark Häcken er liðið lagði Varbergs í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þá kom aðeins einn Íslendingar við sögu í toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar.
Valgeir Lundal var í byrjunarliði Häcken sem átti ekki í miklum vandræðum með Varbergs. Heimamenn voru 2-0 yfir í hálfleik en Valgeir lagði upp þriðja mark leiksins þegar tæp klukkustund var liðin. Hann fékk þá sendingu upp vinstra megin og lyfti boltanum á fjær þar sem Uddenas Oscar skallaði boltann í netið. Oscar Uddenäs nickar in 3-0 för Häcken!Se matchen på https://t.co/AJnP9nrqfz pic.twitter.com/MrMAt2vc77— discovery+ sport (@dplus_sportSE) May 1, 2022 Staðan orðin 3-0 og virtist sem það yrði lokatölur en gestirnir fengu tvær vítaspyrnur undir lok leiks. Sú fyrri fór forgörðum á meðan sú síðari endaði í netinu og leiknum lauk því með 3-1 sigri Häcken. Häcken er í 5. sæti með 11 stig eftir sex umferðir. Í Danmörku mættust Midtjylland og FC Kaupmannahöfn í toppslag deildarinnar. Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn af bekk FCK þegar fimm mínútur voru til leiksloka á meðan Hákon Arnar Haraldsson sat allan tímann á bekknum. Elías Rafn Ólafsson lék ekki með Midtjylland vegna meiðsla og Andri Fannar Baldursson var ekki í leikmannahóp FCK. Þegar fjórar umferðir eru eftir munar aðeins þremur stigum á liðunum. FCK trónir á toppnum með 58 stig á meðan Midtjylland er með 55 stig. Ísak Bergmann byrjaði leikinn á bekknum.vísir/Getty
Fótbolti Sænski boltinn Danski boltinn Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Sjá meira