Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð hafa kynnt stefnuskrá í komandi kosningum. Lögð áhersla á uppbyggingu sveitarfélags í vexti og styrk á öllum sviðum. Þá þarf að standa vörð um fræðslustarf í Fjarðabyggð.
Hér eru nokkur þeirra atriða sem við viljum leggja áherslu á menntamálum sveitarfélagsins:
- Mikilvægt er að tryggja framþróun Háskólaseturs Austfjarða. Við bindum miklar væntingar við háskólasetrið og tengingu þess við aðrar háskóla- og rannsóknastofnanir í landinu. Sé rétt að málum staðið mun háskólasetrið tryggja aukið aðgengi að háskólanámi í heimabyggð.
- Sjálfstæðisflokkurinn vill að áfram verði séð til þess að 12 mánaða börn fái rými í leikskóla.
- Sterka forystu sveitarstjórnar þarf til að krefjast aukinna fjármuna til Verkmenntaskóla Austurlands. Hallað hefur verulega á veitta fjármuni til verkmennta.
- Við í Sjálfstæðisflokknum í Fjarðabyggð viljum nýta húsnæði Fjarðabyggðar undir námsver fyrir námsaðstöðu.
- Við viljum taka vel á móti innflytjendum og nýjum íbúum sveitarfélagsins með aukinni kynningu og fræðslu. Einungis þannig tryggjum við að virkni allra þátttakenda í samfélaginu.
- Samhliða innleiðingu á nýrrar menntastefnu í skólastarfi, þarf að ráðast í átak til að eflingar lestrarkunnáttu og lesskilnings.
- Við viljum aukna snjallvæðingu í skólastarfið – fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra.
Við leitum eftir þínum stuðningi þann 14. maí n.k.
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir er leikskólastjóri og Sigurjón Rúnarsson er sjúkraþjálfari. Höfundar skipa 3. og 6. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð