Skoðun

Kröftug upp­bygging á Ás­brú

Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Ásbrúarhverfið hér í Reykjanesbæ er fjölmenningarsamfélag. Það er á svo margan hátt styrkur þess um leið og það felur í sér ýmsar áskoranir. Því miður hefur hverfið ekki fengið þá athygli og alúð sem það á skilið sem hraðvaxandi samfélag hér í bæ. Það er mikilvægt fyrir Reykjanesbæ í heild að samfélagið á Ásbrú sé ræktað og hlúð sé að því sem einu af hverfum Reykjanesbæjar með myndarbrag. Tilfinning íbúa er á þann veg að hverfið sé því miður afgangsstærð þegar kemur að ýmsu sem þarf að hlú að og byggja upp.

Skólinn á að vera hjarta samfélagsins

Í hverju samfélagi er hægt að líta á skólann sem hjarta samfélagsins þar sem unnið er markvisst að því að tryggja jöfn tækifæri til menntunar. Skólabyggingar Háaleitisskóla í Ábrúarhverfinu eru á afar óhentugum stað og þær eru líka komnar vel til ára sinna og standast ekki að öllu leyti nútímakröfur. Skólaleikvöllurinn sem á að vera staður sem styður við hreyfi- og félagsþroska er í óásættanlegu ástandi. Staðsetningin veldur því að nemendur þurfa að sækja skóla um langan veg og nær enginn nemandi hefur kost á því að ganga í skólann. Þá er heldur ekki hægt að horfa framhjá því að innan girðingar flugvallarins sem staðsett er alveg við skólann ganga um vopnaðir hermenn. Slíkt er ekki ásættanlegt í næsta nágrenni við skóla. Þessir vankantar standa skólasamfélaginu fyrir þrifum.

Framsókn leggur áherslu á kröftuga uppbyggingu og nýja skólabyggingu strax!

Það er einn af áhersluþáttum í málefnaskrá Framsóknar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar nú í vor að sérstaklega sé horft til þess að stórefla Ásbrúarhverfið og gera það að aðlaðandi hverfi til að búa í. Það viljum við gera með því að byggja upp innviði og stórbæta umhverfi íbúa. Grundvallarþáttur í því ljósi er að hafist verði handa sem allra fyrst við að byggja nýjan skóla í hverfinu sem leysir af hólmi þær byggingar sem nú eru notaðar undir skólastarf Háaleitisskóla.

Framsókn hefur sýnt vilja sinn í verki

Nú hefur verið hafin vinna við deiliskipulag í hverfinu þar sem gert er ráð fyrir að rísi ný skólabygging og vegleg skólalóð ásamt almenningsgarði. (Um er að ræða svæðið fyrir neðan Grænásbraut og ofan Skógarbrautar). Með þessari vinnu hefur Framsókn sýnt vilja sín í verki hvað varðar það að farið verði í veglega uppbygginu innviða í Ásbrúarhverfinu ásamt mótun útivistarsvæða sem munu bæta lífsgæði íbúa umtalsvert.

Það er ljóst að atkvæði greitt Framsókn mun tryggja það að þessi uppbygging mun hefjast af fullum krafti strax á næsta kjörtímabili.

Höfundur er skólastjóri og skipar 9. sæti á B-lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí næstkomandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×