Sérstök dómnefnd fór svo yfir allar tilnefningar. Hún hefur valið átta einstaklinga sem þóttu skara framúr og hefst nú kosning á Iðnaðarmanni ársins 2022.
Þetta er í sjöunda skiptið sem Iðnaðarmaður ársins er valinn hér á Vísi. Árið 2015 var Arnór Davíð Pétursson pípari valinn, 2016 var það Halldóra Þorvarðardóttir blikksmiður, 2017 Auður Linda Sonjudóttir, 2018 Kristín Snorradóttir skrúðgarðyrkjufræðingur, 2019 Malín Frid loftlínurafvirki og 2020 Helgi Ólafsson rafvirki.
Kosningin er í samstarfi við Sindra og stendur yfir til hádegis föstudaginn 20. maí. Í kjölfarið verður sigurvegarinn kynntur. Hér fyrir neðan má sjá keppendur og lesa meðmælabréfin sem fylgdu tilnefningum þeirra. Þar fyrir neðan er síðan kosningin sjálf og hvetjum við alla til að taka þátt.

Monika Orlowska
Meðmælabréf: Monika fer létt með öll verk í kirkjugarðinum. Hvort sem það er að fella hæstu trén eða henda niður hellum. Svo er hún tveggja barna móðir sem stefnir á sveinspróf í skrúðgarðyrkju í haust. Hún er grjóthörð í öllu sem hún gerir og í síðasta vinnupartý drakk hún alla kallana undir borðið.
Örn Hackert
Meðmælabréf: Útúrtattaður vinnualki sem fer í sund daglega. Breytir skipulaginu á íbúðinni hjá sér og konu sinni þrisvar sinnum í mánuði (minnst). Skipulagður, lausnamiðaður, stundvís og virkilega hress og skemmtilegur. Harðduglegur maður og einfaldlega besti iðnaðarmaður landsins.
Hannes Kristinn Eiríksson
Meðmælabréf: Stálsmiður, brugghúsasmiður og vert á Brother Brewery. Rafmagnshjólaleiðtogi Vestmannaeyja, ritari slökkviliðsins, vinur Ketils. Með eindæmum góður blikksmiður.

Æsgerður Elín Jónsdóttir
Meðmælabréf: Þriðji ættliður í bílamálum í fjölskyldufyrirtækinu Lakkhúsið. Fékk verðlaun frá Borgarholtsskóla þegar hún útskrifaðist úr bílamálaranum, tekur svo sveinsprófið í sumar. Er búinn að vinna í Lakkhúsinu núna í þrjú ár og er drulluflott.
Bergrós Björk Bjarnadóttir
Meðmælabréf: Hún Bergrós er raflagnmeistari, rekur eigið fyrirtæki og er fædd árið 1997. Meistari rafiðna.
Guðrún Jóhannsdóttir
Meðmælabréf: Þrítugur smíðakennari í grunnskóla og nemi í húsgagnasmíði.

Daria Fijal
Meðmælabréf: Daria útskrifaðist sem bifvélavirki vorið 2021 og hefur verið að vinna á verkstæðinu hjá Bílabúð Benna. Hún er ótrúlega dugleg og ákveðin í því sem hún gerir, stundvís og hraðhend, vinnur vel og mjög góð i samskiptum bæði við viðskiptavini og vinnufélaga. Hún er eina stelpan á verkstæðinu, stjórnar öllum með harðri hendi líka yfirmanninum, karlarnir hafa ekkert í hana. Hún er manneskjan sem allir hringja í þegar það er vandamál með bílinn, little car ninja.
Jón Gestur Atlason
Meðmælabréf: Frábær smiður og líka rappari og trommari. Hann er þekktur fyrir ljúfa lund, vera alltaf hress og í góðu skapi. Hann er ávallt látinn taka að sér að kenna nýjum starfsmönnum handtökin. Hann hefur haft frábær áhrif á starfsanda fyrirtækis síns og margir ungir smiðir eiga Jóni mikið að þakka! Nonni er feyki duglegur og alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum. Hefur smíðað mörg hús og þau standa öll enn. Hann kann líka að henda hamri upp í loft og láta hann lenda í smíðabeltinu sem er eitthvað sem aðeins alvöru smiðir geta.
Jæja, þá er komið að því. Hver er iðnaðarmaður ársins 2022? Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.