Skoðun

C þig á kjör­stað

Sara Dögg Svanhildardóttir, Guðlaugur Kristmundsson og Rakel Steinberg Sölvadóttir skrifa

Á laugardaginn færð þú kæri kjósandi tækifæri til að nýta kosningaréttinn. Við hvetjum þig til að mæta á kjörstað og taka þannig þátt í virku lýðræði, sýna kjörnum fulltrúum aðhald og taka afstöðu. Frambjóðendur Viðreisnar er hópur fólks sem brennur fyrir upplýstari, sanngjarnari og skilvirkari Garðabæ þar sem ábyrg fjármálastjórn mun skila sér í aukinni þjónustu og velferð fyrir okkur öll. Búseta frambjóðenda er jafnt dreifð milli allra hverfa bæjarins og munum við berjast fyrir uppbyggingu og sérkennum allra hverfa. Líka gleymdu hverfanna, Urriðaholti og Álftanesi

Aftur í forystu í skólamálum

Við viljum fjölbreytta skóla og alvöru valfrelsi þar sem Garðabær tekur forystu á ný í skólamálum. Við viljum skólabyggingar sem er vel viðhaldið og mæta þörfum allra barna óháð námslegri eða félagslegri stöðu. Tryggja þarf að skólar bjóða upp á öflugt og eftirsóknarvert unglingastig í öllum grunnskólum sem starfa á unglingastigi og gott rými fyrir félagsstarf innan þeirra allra. Við viljum standa með starfsfólkinu okkar og gera vinnuumhverfi skólanna eftirsóknarvert. Við viljum lækka leikskólagjöld og huga betur að velferð barna meðal annars með því að bjóða upp á foreldrafræðslu og snemmtækan stuðning.

Ábyrg fjármálastjórn í þágu velferðar

Við viljum að Garðabær sé rekinn með ábyrgum og sjálfbærum hætti með traustum innviðum. Við viljum taka miklu stærri skref í stafrænni þróun til að efla þjónustu við íbúa og skilvirkari störf starfsmanna. Við viljum gagnsæi og lýðræði þar sem almennahagsmunir eru teknir fram yfir sérhagsmuni. Við viljum tryggja hátt þjónustustig þegar kemur að velferð og velferðarþjónustu sem byggir á mannréttindum, virðingu, virkni og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Við viljum að allir fái notið hæfileika sinna án tillits til fötlunar, veikinda, aldurs, atvinnuleysis eða félagslegra erfiðleika.

Umhverfisvæn og samfélagslega ábyrg uppbygging

Við viljum fjölga valkostum fyrir íbúa Garðabæjar, hraða uppbyggingu og tryggja uppbyggingu innviða. Við viljum umhverfisvænt skipulag með lýðheilsu fólks í forgrunni, öflugum almenningssamgöngum og blómlegri og fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Við viljum samfélag þar sem íbúar, börn jafnt sem fullorðnir, komist leiða sinna á öruggan hátt og hafi alvöru valkost um vistvænar samgöngur.

Fjölbreytileiki í menningu, íþróttum og tómstundum fyrir öll

Við viljum skapa umhverfi þar sem íbúar og gestir geti notið menningar og lista. Við viljum samninga við íþrótta- og æskulýðsfélög bæjarins sem tryggir þeim tækifæri til að vaxa og þróast þannig að nýjar íþróttir eða fjölbreyttari starfsemi fái tækifæri. Það á að vera í höndum félagasamtaka eða fyrirtækja að sinna þessu starfi í samstarfi við bæinn. Við viljum vel skipulagt og uppbyggilegt íþrótta- og tómstundastarf sem eflir félagslega færni og samskipti, bætir andlega og líkamlega líðan og dregur úr áhættuhegðun barna og ungmenna í Garðabæ. Þannig veitum við besta forvörn.

Ferskir vindar í Garðabæ

Til þess að hleypa af stað ferskum vindum Viðreisnar um Garðabæ, þá skiptir atkvæðið þitt máli. Við viljum upplýstari, fjölbreyttari og framsæknari Garðabæ þar sem ábyrg fjármálastjórn verður höfð að leiðarljósi í þágu þjónustu og velferðar fyrir okkur öll. Við viljum koma að myndun nýs meirihluta í Garðabæ.

Setjum x við C og látum ferska vinda blása í Garðabæ.

C þig á kjörstað.

Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Viðreisnar í Garðabæ

Guðlaugur Kristmundsson, markaðsstjóri og skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ

Rakel Steinberg Sölvadóttir, frumkvöðull og skipar 3ja sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×