Skoðun

Kæru fram­bjóð­endur Reykja­víkur

Emma Íren Egilsdóttir skrifar

Það skýtur skökku við að hlusta á umræður frambjóðenda í Reykjavík í kosningabaráttunni. Þar er talað um að fjárfesta eigi í hverfum borgarinnar, ég hef ekki séð að undanfarin ár hafi Kjalarnesið, og þá sérstaklega dreifbýlið nokkru máli skipt í aðgerðum borgarinnar. Það á að þétta byggð í Reykjavík, við þekkjum öll hugtakið „þétting byggðar“, en það liggur þó fyrir að Kjalnesingar fá ekki að njóta þeirrar þéttingar. Það svæði sem hefur hvað mest svigrúm fyrir uppbyggingu er Kjalarnes, og hefur í lengri tíma, en það á samt ekki að horfa til þessa svæðis. Það er undarlegt að á sama tíma og rætt er um lóðaskort í Reykjavík og hækkun verðs á húsnæðismarkaði er íbúum á Kjalarnesi meinað að byggja upp sitt land. Það eru fjölskyldur sem búa hér, fjölskyldur sem myndu gjarnan vilja halda áfram að búa á sínu landsvæði en til þess að fjölskyldur geti áfram búið á sínu landi þarf að fjölga íbúðarhúsum á landinu, það gefur auga leið, ekki satt? En það virðist vera svo að lóðaskorturinn sem við öll erum vitni af sé ekki svo mikill að einstaklingum sé leyft að byggja upp sitt land.

Það er talað um fjölbreytta kosti til þess að allir fái að njóta sín óháð því hvar einstaklingur kýs að búa innan Reykjavíkur, það er hins vegar ekki sú reynsla sem íbúar dreifbýlis hafa af því að búa í Reykjavík, eins og fram hefur komið á fundum með íbúum svæðisins. Ljóst er að þær hindranir sem við mætum eru hindranir sem við komum til með að halda áfram að mæta og hyggst borgarstjórn ekki hafa í áætlunum sínum að greiða úr.

Það eru að verða komin tuttugu og fjögur ár síðan sameining Reykjavíkur og Kjalarness var samþykkt í kosningum, það er algjörlega ljóst eftir þessi tuttugu og fjögur ár að borgarstjórn vill ekki byggja Kjalarnesið upp, þrátt fyrir mikið landsvæði og skýran vilja íbúa. Það er í raun bara fyndið að hlusta á borgarstjórn koma með sömu loforð ár eftir ár og því spyr ég, ætli menn komi enn og aftur með sömu ræðu að fjórum árum liðnum?

Það er alveg ljóst að þeir Kjalnesingar sem búa í dreifbýli eru í þessum kosningum eins og áður að fá enn einu blautu tuskuna í andlitið. Viðmótið gagnvart okkur sem búum í dreifbýli er með ólíkindum, ég er Reykvíkingur hvort sem mér og/eða öðrum líkar það betur eða verr.

Höfundur er háskólanemi og íbúi Reykjavíkur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×