Skoðun

Tæknilausnir og sjálfbærni í ferðaþjónustu

Inga Rós Antoníusdóttir og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifa

Ferðaþjónustan er vöknuð til lífsins! Eftir baráttu upp á líf og dauða sjá íslensk ferðaþjónustufyrirtæki nú flest aftur fram á blómleg viðskipti og glaða gesti á hlaðinu. Síðustu ár hafa einkennst af endurskipulagningu rekstursins, oft með undraverðum hætti, og ferðaþjónustan hefur sannað seiglu sinn og styrk. Breytt viðskiptaumhverfi og áskoranir kalla á nýjar lausnir. Margar af þeim eru tæknilegar og gerðar til að auka hagkvæmni sem og samkeppnishæfni í rekstri. Megináhersla íslenskrar ferðaþjónustu er á sjálfbærni. Reksturinn þarf að vera sjálfbær, náttúran þarf að geta borið þann fjölda ferðamanna sem við bjóðum velkomin til Íslands og að sjálfsögðu þurfa tæknilausnirnar sem notaðar eru einnig að hafa þetta að leiðarljósi. Sumar eru hreinlega til þess gerðar að auka sjálfbærni í ferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti.

Nýsköpun gegnir lykilhlutverki í öllum breytingum og er mikilvæg hverri grein sem vill dafna og vaxa. Nýsköpun gegnir ekki bara mikilvægu hlutverki á þróunar og vaxtaskeiði fyrirtækja heldur getur verið úrslitaþátturinn í því hvort eldri fyrirtæki lifi af nýja samkeppni eður ei. Ný tækni og bætt hæfni í notkun hennar bætir því ekki eingöngu skilvirkni og þjónustu heldur er rekstrarlegur ábati óumdeilanlegur.

Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn standa fyrir Iceland Travel Tech ráðstefnunni í Grósku 19.maí. þar sem m.a. verða kynntar tæknislausnir sem eru að nýtast íslenskum ferðaþjónum vel á ýmsum stigum rekstursins. Fjallað verður m.a. um nýja tækni í bálkakeðjum og rafmyntum og hvert hún getur leitt okkur, hvernig bílaleiga og tæknifyrirtæki sameinuðust um að smíða miðlæga greiðslugátt sem sparar bílaleigum allt að heilt stöðugildi, hvernig Bláa lónið nýtir sér tækni og hringrásarhagkerfið til þess að efla forrystu og samkeppnisforskot og hvernig við auðveldum ferðamönnum og ferðaþjónum í sameiningu að auka sjálfbærni á ferðalögum með deilihagkerfi rafmagnsbíla.

Viðburðurinn er ókeypis og opinn öllum en mikilvægt er að skrá sig:

Iceland Travel Tech // 2022 (google.com)

Inga Rós er verkefnastjóri stafrænnar þróunnar hjá Ferðamálastofu. Ásta Kristín er framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×