Ráðamenn á Vesturlöndum ræða nú leiðir til að koma kornvöru frá Úkraínu, sem situr föst í vöruhúsum vegna átakanna og umsáturs Rússa við suðurströnd landsins. Fregnir herma að Rússar hafi gert skipulagðar árásir til að eyðileggja kornbirgðir en mörg lönd í Afríku og víðar eru afar háð kornútflutningi frá bæði Úkraínu og Rússlandi.
Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag.
Helstu vendingar:
- Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, ávarpaði Bundestag, þýska þingið, í morgun og sagði þar að Rússland mætti ekki vinna stríðið í Úkraínu. Hann sagði stríðið vera stærstu krísu Evrópusambandsins hingað til og að einræðistilburðir Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, væri ógn gegn evrópskri samstöðu.
- Bandaríkjamenn segja Rússa enn hafa mikla yfirburði á vígvöllum Úkraínu og að þrátt fyrir mikið mannfall sé hernaðargeta þeirra mikil. Á blaðamannafundi Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í dag kom fram að stríðið gæti staðið yfir í langan tíma.
- Alþjóðabankinn hefur heitið því að leggja til 30 milljarða Bandaríkjadala til að freista þess að stemma stigu við fæðuskorti í heiminum. Fjármunirnir munu renna til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru í gangi.
- Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir meinta notkun Rússa á leiservopnum sé til marks um misheppnaða innrás þeirra og líkir fregnum af vopnunum við áróður nasista þegar þeir ræddu um „wunderwaffe“; nýtt undravopn.
- Selenskí hefur undirritað tilskipun til að framlengja yfirlýsingu um neyðarástand í landinu og herlög í 90 daga.
-
Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin.
- Bandaríkjamenn hafa opnað sendiráð sitt í Kænugarði á ný, eftir þriggja mánaða lokun.
- Fjármálaráðherrar G7 funda í dag til að ræða fjármál Úkraínu.

Ef vaktin sést ekki hér að neðan, gæti þurft að endurhlaða síðuna.