Treyjan er tiltölulega látlaus, ljósblá með dökkbláum ílöngum fleti sem nær yfir merkið, en mörgum þykir of lítið hafa verið lagt í hönnunina og hún einkennast af metnaðarleysi.

Vísir hafði samband við fatahönnuðinn Guðmund Jörundsson til að fá faglegt mat.
„Ég hefði bara fílað það betur ef einhver hefði allavega reynt að gera eitthvað þó það væri bara heavy ljótt. Þetta er bara hvorki fugl né fiskur.“ sagði Guðmundur í samtali við fréttamann.
„Þetta er eins og ef þú færir í íþróttabúð á Tene og færir í gegnum svona 300 týpur af einhverjum Puma lager-treyjum og þessi treyja væri bara ein af þeim. En maður hefur bara varla skoðun á þessu, þetta er svo ómerkilegt.“
Einfaldleiki réði för
Stefán Sveinn Gunnarsson, sviðstjóri markaðssviðs KSÍ, segir í skriflegu svari Vísis að ferlið á bakvið treyjuna taki allt að að 24 mánuði,

„Puma kynnir okkur ákveðna “Creative direction” eða meginþema hverrar línu. Eftir þessari línu útfæra þeir svo tvær til þrjár tillögur sem við förum yfir hér innanhúss og veitum endurgjöf. Það var ljóst frá fyrstu drögum af þessari nýju treyju að það væri einfaldleiki sem myndi ráða för í landsliðstreyjum Puma þetta skiptið, þetta má glögglega sjá til dæmis á nýjum treyjum Ítalíu, Sviss og fleiri samböndum sem eru í Puma.“ sagði Stefán
„Viðtökur síðustu treyju voru mjög góðar og því vorum við meðvituð um að það yrði erfitt að fylgja henni eftir. Treyjan mun án efa sanna sig og við hlökkum til að sjá strákana og stelpurnar okkar í henni næstu tvö árin."
Mikil óánægja
Það var þó enginn hörgull á fólki sem hafði skoðun á treyjunum á Twitter þar sem sjaldnast er skafað utan af því.
Þetta er án efa ein ljótasta fótbolta treyja ever…. Yikes https://t.co/MQAZZCUtp5
— Magni Jóhannes (@MagniJohannes) May 30, 2022
Þau vilja augljóslega ekki að neinn fari í þessa treyju sjálfviljugur. https://t.co/Sd6B1mQcCg
— Sunna Kristín (@sunnakh) May 30, 2022
Jón Kári Eldon, vefhönnuður, og Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka, tjáðu skoðun sína með myndrænum hætti.
https://t.co/RfG49v9ppz pic.twitter.com/YLzgnM2q8H
— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) May 30, 2022
https://t.co/Y2JwcyQ5pr pic.twitter.com/mGXj95gCiD
— Björn Berg (@BjornBergG) May 30, 2022
Atli Fannar Bjarkason, verkefnastjóri vefútgáfu RÚV líkti treyjunni við verðbólguspá og Stefán Pálsson, sagnfræðingur benti á nytsemi dökkbláa „brjóstvasans“, sem komi sér vel fyrir smiði sem notast við hallamál.
hvort er þetta fótboltatreyja eða verðbólguspá? https://t.co/InsvuIYGUo
— Atli Fannar (@atlifannar) May 30, 2022
Þessi brjóstvasi á reyndar örugglega eftir að koma sér vel, t.d. fyrir smiði sem þurfa að notast við hallamál í vinnu sinni. https://t.co/N1tvxqlqv4
— Stefán Pálsson (@Stebbip) May 30, 2022
Þess ber að geta að von er á annarri treyju sem kvennalandsliðið mun skarta á EM í Englandi í sumar. Það er vonandi fyrir þá sem kvörtuðu yfir þessari treyju að sú treyja verði eitthvað líflegri.