„Með því að tryggja okkur sýningarréttinn á leikjum í Þjóðadeildinni og öllum leikjum íslenska karlalandsliðsins til 2028 stígum við mikilvægt skref sem leiðandi íþróttastreymisveita,“ segir Hjörvar Hafliðason, íþróttastjóri Viaplay á Íslandi.
Ísland mætir Ísrael í Þjóðadeildinni 2. júní, Albaníu 6. júní, Ísrael 14. júní og Albaníu 27. september. Kynslóðaskipti standa yfir í íslenska landsliðinu. Margir ungir og spennandi leikmenn hafa verið að láta að sér kveða upp á síðkastið og munu fá að láta ljós sitt skína með landsliðinu í Þjóðadeildinni. „Við höfum tekið inn marga nýja, unga og spennandi leikmenn, erum með lið sem við erum að þróa og byggja upp. Þessir leikir sem eru framundan í Þjóðadeildinni munu nýtast okkur vel á þeirri vegferð. Þjóðadeildin er alvöru mót sem gefur okkur kost á að þróa liðið í keppnisleikjum og það eru virkilega góðar fréttir að knattspyrnuáhugafólk geti séð leikina í opinni dagskrá á Viaplay,“ segir Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, sem tilkynnti hópinn fyrir leikinn gegn Ísrael fyrr í dag.

Þjóðadeildin er keppni á vegum Knattspyrnusambands Evrópu sem fer fram á haustin á tveggja ára fresti, áður en undankeppnir Evrópu- og Heimsmeistaramóta hefjast. Ísland er í riðli með Ísrael og Albaníu, hvort tveggja lið sem teljast álíka sterk og Ísland sé litið til styrkleikalista FIFA. Ísland skipar 63. sæti listans, Albanía 66. sæti og Ísraelar 76. sætið. Ísland á því góða möguleika á því að ná góðum úrslitum gegn sterkum andstæðingum.
Rússland átti að vera í þessum sama riðli en var meinuð þátttaka í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Í stað leiks sem áformaður var við Rússland mun Ísland mæta San Marínó í vináttulandsleik 9. júní.
Áskrifendur Viaplay geta fylgst með leikjum Íslands og öllum öðrum leikjum Þjóðadeildarinnar í beinni útsendingu.
Sæktu Viaplay-appið í sjónvarpið, símann og Apple TV og njóttu þess að horfa á heimsklassaíþróttir, úrval af Viaplay Originals og allt hitt gæðaefnið sem Viaplay hefur upp á að bjóða.