Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. júlí 2022 07:01 Sumarið getur verið líklegri tími en annar til að upplifa erfiða þynnkudaga í vinnunni. Að þamba kaffi eða sofna í pásum er þó ekki málið. Vísir/Getty Að öllu jöfnu tökum við ekki út slæma þynnkudaga í vinnunni. Sumarið er þó líklegri tími til að svo geti verið. Til dæmis ef góður vinahópur hittist á fimmtudegi og það hreinlega var of gaman of lengi…
Besta ráðið gegn þessu er einfaldlega: Ekki drekka of mikið áfengi kvöldið fyrir vinnudag! En hér eru nokkur góð ef sú staða kemur upp að þú ert að drepast úr þynnku í vinnunni. 1. Sturta og fatnaður Það fyrsta sem þú þarft að gera þegar þú vaknar er að fara í sturtu. Þótt það kosti mögulega að þú haldir að þú verðir nokkrum mínútum of sein/n til vinnu. Ekki aðeins hressir þú þig vel við heldur eru meiri líkur á að áfengisilmurinn fylgi þér ekki til vinnu. Veldu þér líka þægileg föt fyrir þennan dag, þó ekki þannig að þau séu allt öðruvísi en fötin sem þú klæðist almennt í vinnunni. Oft leyfum við okkur þó frjálsari fatadaga á föstudögum yfir sumarið. Þar sem ólíklegasta fólk mætir jafnvel í gallabuxum og strigaskóm. Og ef þú telur líklegt að þú svitnir gríptu þá með þér auka bol eða peysu til að geta skipt um yfir daginn. 2. Kaffið er freistandi en... Við eigum alltaf að drekka nóg að vatni en á þessum erfiðu þynnkudögum er mælt með því að sleppa kaffinu en velja þess í stað drykki eins og Gatorade eða gos. Sumir vilja meina að Sprite virki sérstaklega vel á þynnkuna og hér er þá verið að vísa í könnun sem gerð var á 57 mismunandi gostegundum þar sem spurt var hvaða gos fólki fannst virka best gegn þynnkunni. 3. Hvers vegna banani frekar en skyndibiti? Ókei, við þekkjum öll þessa löngun í skyndibitann daginn eftir. Hamborgari, franskar, kók og kokkteilsósa kannski í hádeginu? Gæti hljómað freistandi en hið rétta er að skyndibita er ekki að hjálpa þér á þynnkudögum því skyndibitinn er sagður hafa þveröfug áhrif. Ef þú ert að drepast úr þynnku í vinnunni og þarft að standa þína pligt, er skynsamlegra að horfa til hollustunnar. Banani er sagður algjör snilld við þynnku og mælt með því að borða einn áður en þú mætir til vinnu og taka líka með í vinnuna banana, hnetur eða eitthvað annað hollustusnarl. 4. Hausverkurinn Mundu að dagurinn í dag á að snúast um vinnuna og verkefnin þín þar, en ekki það hvort þú sért að drepast úr orkuleysi og þynnku. Hér er því mælt með því að taka verkjatöflu til að hressa sig við og losna við höfuðverkinn. Því eitthvað þurfum við jú að geta afkastað í vinnunni. 5. Stuttar og frískandi pásur Í stað þess að horfa á klukkuna allan daginn og bíða eftir því að komast heim, er gott að reyna að fókusera á vinnutengdu verkefnin en taka sér pásur reglulega og helst þá þannig að þú farir út úr húsi og fáir smá súrefni. Því það að komast undir bert loft og draga að sér andann í nokkur góð skipti getur gert kraftaverk. Þannig að á þynnkudeginum er mælt með því að hressa sig við með stuttum og frískandi pásum (en ekki að setjast niður í næði og reyna að dorma eða sofna!). Satt best að segja er sagt að súrefni sé meira hressandi en verkjatafla þegar það kemur að þynnku, þannig að ekki vanmeta það að fara aðeins út og fá þér frískt loft. 6. Ef það er ekkert gagn af þér… Nú ef staðan er þannig að þú veist að það verður ekkert gagn af þér í vinnunni er best að koma heiðarlega fram. Annað hvort með því að hafa samband strax að morgni og biðja um frí eða að ræða við yfirmanninn og biðja um að fá að fara fyrr. Enda skapar það aukaálag á vinnufélaga þína ef þú hangir bara í vinnunni og gerir ekkert annað en að reyna að lifa af daginn. Já, þá er nú betra að koma heiðarlega fram og biðja um frí.
Heilsa Góðu ráðin Tengdar fréttir Starfsfólki tryggt aðgengi að sálfræðingum með lágmarksbiðtíma Það á að vera gaman í vinnunni, sveigjanleikinn á að vera mikill, jafnrétti, fjölbreytileiki og síðast en ekki síst góð andleg heilsa. 20. júní 2022 07:01 „Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Mikið hefur gengið á hjá SÁÁ síðustu mánuði. Deilur við Sjúkratryggingar Íslands, Einarsmálið svo kallaða þar sem fyrrum formaður varð uppvís að því að hafa keypt vændi. Fyrirhugað formannsframboð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur sem síðan var dregið til baka vegna skítkasts og leiðinda. Óánægjuraddir að skrifa aðsendar greinar. 17. júní 2022 08:02 Svefnvottun íslenskra vinnustaða: Dýrt að vera með ósofið fólk í vinnu Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi er að kosta atvinnulífið háar upphæðir á ári. Reyndar svo háar að allar tölur mælast í tugum milljarða. Já, ósofið starfsfólk er hreinlega að kosta atvinnulífið marga milljarða á ári. 4. maí 2022 07:02 Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01 Að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt Kaffi og orkudrykkir hættir að gera sitt gagn en dagurinn varla hálfnaður. Hvernig er best að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt? 28. janúar 2020 09:00 Mest lesið Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Viðskipti innlent Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Viðskipti innlent Verðbólgan komin undir fimm prósent Viðskipti innlent Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Viðskipti innlent Steyptu fyrsta gullmolann Viðskipti innlent Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Viðskipti innlent Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Viðskipti innlent Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Sjá meira
Starfsfólki tryggt aðgengi að sálfræðingum með lágmarksbiðtíma Það á að vera gaman í vinnunni, sveigjanleikinn á að vera mikill, jafnrétti, fjölbreytileiki og síðast en ekki síst góð andleg heilsa. 20. júní 2022 07:01
„Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Mikið hefur gengið á hjá SÁÁ síðustu mánuði. Deilur við Sjúkratryggingar Íslands, Einarsmálið svo kallaða þar sem fyrrum formaður varð uppvís að því að hafa keypt vændi. Fyrirhugað formannsframboð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur sem síðan var dregið til baka vegna skítkasts og leiðinda. Óánægjuraddir að skrifa aðsendar greinar. 17. júní 2022 08:02
Svefnvottun íslenskra vinnustaða: Dýrt að vera með ósofið fólk í vinnu Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi er að kosta atvinnulífið háar upphæðir á ári. Reyndar svo háar að allar tölur mælast í tugum milljarða. Já, ósofið starfsfólk er hreinlega að kosta atvinnulífið marga milljarða á ári. 4. maí 2022 07:02
Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01
Að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt Kaffi og orkudrykkir hættir að gera sitt gagn en dagurinn varla hálfnaður. Hvernig er best að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt? 28. janúar 2020 09:00