Í gær var frábær dagur við bakka Eystri Rangár þegar það veiddust 38 laxar en það er mjög góð ganga af laxi í ána á þessum vaxandi straum. í dag er stórstreymt og það kemur ekkert á óvart ef veiðitölur dagsins í dag fara yfir 50 laxa. Þegar stóru göngurnar mæta í Eystri Rangá um miðjan júlí og fram í miðjan ágúst eru 100 laxa dagar langt frá því að vera óþekktir en við skulum engu að síður setja væntingarnar einhvers staðar á miðjuna.
Ef framhaldið í ánni væri bara á svipuðu róli í eina viku er það 280 laxa vika og 1.200 laxa mánuður sem er ekkert annað en frábær veiði. Á góðu ári gerist það engu að síður að vikan fari í 300-400 laxa og það hefur meira að segja verið hærra á bestu árunum. Það sem af er tímabili virðist þetta lofa mjög góðu fyrir framhaldið og Veiðivísir fylgist spenntur með.