Ísland hefur unnið fjóra af fimm leikjum sínum á HM og gert eitt jafntefli. Í fyrradag tryggði Ísland sér sigur í millriðli 1 með 25-22 sigri á heimaliði Norður-Makedóníu. Íslendingar mæta Hollendingum í átta liða úrslitum klukkan 16:15 í dag.
En hvaða leikmenn eru þetta sem skipa íslenska liðið? Vísir fékk Árna Stefán Guðjónsson, sem þjálfar U-18 ára liðið ásamt Ágústi Jóhannssyni, til að segja frá leikmönnum þess.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (HK) - 17 ára vinstri skytta

„Hún er vinstri skytta í sókn og spilar þrist í vörn. Hún er nautsterk, hrikalega sterk maður gegn manni og hefur bætt sig mikið undanfarið ár. Það er mjög stutt í að hún fái alvöru tækifæri í meistaraflokki, allavega í vörn.“
Brynja Katrín Benediktsdóttir (Valur) - 17 ára línumaður

„Er sóknarlínumaður og ótrúlega lunkin þar. Hún er ekki sú hávaxnasta en nösk við að koma sér í stöður. Frábærlega skemmtileg týpa og góð í hóp.“
Elín Klara Þorkelsdóttir (Haukar) - 17 ára leikstjórnandi

„Frábær í sókn og mjög góð í vörn. Fljót á fótunum og nautsterk. Er sífellt að bæta sig og þegar skilningurinn í sókninni eykst verður hún yfirburðarmaður í deildinni heima, sem hún er á góðri leið með að verða.“
Elísa Elíasdóttir (ÍBV) - 18 ára línumaður

„Frábær leikmaður sem hefur verið í lykilhlutverki hjá ÍBV. Mjög góð í sókn og bindur vörnina okkar saman. Mikill leiðtogi og karakter.“
Embla Steindórsdóttir (HK) - 16 ára leikstjórnandi

„Spilar á miðjunni á móti Elínu Klöru. Klókur leikmaður. Þegar hún kemur inn á fer ekkert bull í gang. Boltinn gengur vel í gegnum hana og hún er góð maður gegn manni. Hún hjálpar okkur líka mikið í vörn og getur spilað bæði þrist og bakvörð.“
Ethel Gyða Bjarnasen (HK) - 17 ára markvörður

„Hún hefur bætt sig mjög mikið á stuttum tíma. Hún er komin aðeins lengra en markverðir á hennar aldri eru almennt, til dæmis varðandi það að geta horft á myndbönd og vita hvert hún á að fara. Tekur fyrirmælum frábærlega og hefur staðið sig ótrúlega vel. Hún á allt hrós skilið.“
Hildur Lilja Jónsdóttir (KA/Þór) - 18 ára hægri skytta/hornamaður

„Örvhentur leikmaður sem er skytta að upplagi en leysir hornið líka fyrir okkur. Er ótrúlega klók og maður sér að hún hefur æft með Rut [Jónsdóttur] í svolítinn tíma. Hún er klók að finna línusendingar og spilar boltanum vel frá sér. Hún verður betri og betri þegar líkamlegi þátturinn kemur með og hún styrktist meira.“
Inga Dís Jóhannsdóttir (HK) - 18 ára vinstri skytta

„Einn af okkar lykilmönnum. Mjög hávaxin og spilar vinstri skyttu í sókn og þrist í vörn. Hún spilar hún fyrir framan þegar við förum í ÍBV-vörnina [5-1 vörn]. Hún er mjög klók þar, með langar hendur, dugleg að stela boltanum og pressa andstæðinginn í tóma þvælu.“
Ingunn María Brynjarsdóttir (Fram) - 16 ára markvörður

„Er yngsti leikmaður hópsins, fædd 2006. Hún er flottur markvörður og eins og Ethel komin lengra en markverðir á þessum aldri. Það á mikið eftir að gerast hjá henni á næstu 2-3 árum. Hún var í byrjunarliðinu hjá okkur á síðasta móti en núna er Ethel búin að standa sig frábærlega. Fólk á eftir að sjá mikið af henni á næstu árum.“
Katrín Anna Ásmundsdóttir (Grótta) - 18 ára hægri hornamaður

„Hefur verið einn af lykilpóstunum hjá Gróttu í Grill 66 deildinni undanfarin tvö ár. Er flottur hornamaður með góða skottækni, sterk í vörn og fljót að keyra fram í hraðaupphlaup.“
Lilja Ágústsdóttir (Valur) - 18 ára vinstri hornamaður

„Er fyrirliði liðsins og spilaði með Lugi í sænsku úrvalsdeildinni hluta af síðasta tímabili. Er frábær að klára færin sín, mikill leiðtogi innan vallar sem utan og klók að stela boltanum. Er frábær leikmaður sem getur líka spilað fyrir utan, sem skytta eða á miðjunni.“
Rakel Oddný Guðmundsdóttir (Haukar) - 18 ára vinstri hornamaður

„Er uppalin í ÍBV en skipti yfir í Hauka fyrir nokkrum árum. Var þá skytta en hefur fært sig niður í hornið. Hefur bætt sig ótrúlega mikið á skömmum tíma. Er með mikinn stökkkraft, líkamlega mjög góð, snörp og sterk. Hún er vön að loka augunum og lúðra boltanum en þegar mýktin kemur í skotin í horninu verður hún mjög góð.“
Sara Dröfn Richardsdóttir (ÍBV) - 17 ára hægri hornamaður

„Ekkert ósvipuð Katrínu. Klók og lunkin við að stela boltanum. Mjög fljót fram í hraðaupphlaupin og fínasti „slúttari“. Þessi týpíski örvhenti hornamaður.“
Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar) - 18 ára hægri skytta/hornamaður

„Getur spilað bæði sem skytta og hornamaður. Er draumur þjálfarans. Hún gerir allt sem hún er beðin um og leysir allt sem þarf að leysa. Mjög góð í vörn og skemmtileg týpa. Hún er alltaf brosandi og gefur af sér, sama hvort hún spilar mikið eða lítið.“
Thelma Melsted Björgvinsdóttir (Haukar) - 18 ára línumaður

„Dóttir drottningarinnar sjálfrar [Hörpu Melsted]. Er mjög svipuð týpa og mamma sín. Er leiðtogi þegar hún er í inn á í vörninni. Ótrúlega fljót fram í hraðaupphlaup og með nef fyrir að koma sér í stöður. Stendur sig alltaf mjög vel í landsliðinu.“
Tinna Sigurrós Traustadóttir (Selfoss) - 18 ára hægri skytta

„Burðarás í liði Selfoss á síðasta tímabili. Maður sér mikinn mun á henni frá síðasta landsliðsverkefni. Er í frábæru líkamlegu standi og einn af okkar lykilpóstum í vörn og sókn. Er nautsterk í bakverðinum og alvöru skytta sem getur bæði farið maður á mann og lúðrað á markið fyrir utan.“