Samningurinn er gerður með fyrirvara um fjármögnun, niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og að Samkeppniseftirlitið samþykki endanlega kaup- og þjónustusamninga. Miðað er við að endanlegir samningar liggi fyrir eigi síðar en 15. desember næstkomandi, að því er segir í fréttatilkynningu um samkomulagið.
Mikilvægt púsl í framtíðarsýn Ljósleiðarans
Í fréttatilkynningu er haft eftir Erlingi Frey Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Ljósleiðarans, að Sýn hafi alla tíð verið einn mikilvægasti viðskiptavinur fyrirtækisins.
„Með þessu samkomulagi bætist mikilvægt púsl í þá framtíðarsýn sem við Ljósleiðarafólk höfum verið að vinna að um nokkurra ára skeið – að byggja upp nýjan landshring og að treysta tekjurnar af þeirri fjárfestingu,“ er haft eftir honum.
Í tengslum við þau áform hafi fyrirtækið þegar kynnt þjónustusamninga við Nova og Farice og samning við utanríkisráðuneytið um afnot af hluta hins svokallaða NATO-strengs umhverfis landið.
„Við Ljósleiðarafólk höfum um hríð rætt þörfina á nýjum landshring fjarskipta til að efla fjarskiptaöryggi í landinu, tryggja aðgang sem flestra heimila að ljósleiðaratengingum, vera tilbúin fyrir aukinn gagnaflutning um 5G og farsímakerfi framtíðar, tryggja öruggt farsímasamband meðfram þjóðvegum og síðast en ekki síst að heilbrigð samkeppni ríki á fjarskiptamarkaði,“ er haft eftir Erlingi Frey.
Vísir er í eigu Sýnar.