Sérfræðingar segja líklegt að Rússar ætli sér að skera á birgðalínur úkraínskra hermanna í Izyum, sem er ein af þungamiðjum herafla Rússlands í austurhluta Úkraínu.
Í frétt Wall Street Journal (áskriftarvefur) er vitnað í bæði úkraínska embættismenn og rússneska sérfræðinga sem fjalla um málefni rússneska hersins á samfélagsmiðlum, um að eitt af skotmörkum Úkraínumanna sé borgin Kupyansk.
Hún er norður af Izyum en Rússar nota hana til birgðaflutninga til hersveita sinna í austurhluta Úkraínu.
Þá hafa borist fregnir af því í morgun að Úkraínumenn hafi skotið niður orrustuþotu yfir Kharkív-héraði í morgun.
Stated to be a footage of recent SU-25 down by in Kharkiv region
— Cyx (@Cyx_5) September 7, 2022
Excellent vid, btw
Might be wrong, but it looks like fighter shot him down??@vcdgf555 @CovertShores @TheShipYard2 pic.twitter.com/HeoiDE8lb3
Rússar hafa ekkert sagt opinberlega um átökin í Kharkív en Oleksiy Arestovych, ráðgjafi Vólódímírs Selenskís, forseta Úkraínu, staðfesti við WSJ að Úkraínumenn væru að ná góðum árangri.
Hér má sjá myndband af úkraínskum hermönnum á ferðinni í Kharkív í morgun.
Continued rapid Ukrainian gains being reported in the Kharkiv region. pic.twitter.com/4HlHrFaFy8
— Moshe Schwartz (@YWNReporter) September 7, 2022
Undanfarnar vikur hafa Úkraínumenn herjað á Rússa í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, þar sem þeir hafa frelsað nokkra bæi og eru sagðir reyna að umkringja rússneska hermenn á norðurbakka Dnipro.
Sagt var frá því í gær að ráðgjafi Selenskís hefði sagt von á óvæntum og góðum fréttum frá Kharkív í norðri. Færslur á samfélagsmiðlum höfðu þá sýnt Úkraínska hermenn í bæjum nærri Balaklia og úthverfum en það svæði hafði lengi verið í höndum Rússa.
Enn er tiltölulega óljóst hve umfangsmikil sókn Úkraínumanna í Kharkív er en hún er þó sögð hafa valdið miklum usla meðal rússneskra hermanna á svæðinu.
Úkraínumenn hafa undirbúið gagnsóknir víða í Úkraínu, með því markmiði að ná frumkvæðinu í átökunum við Rússa og þvinga Rússa til að bregðast við aðgerðum þeirra og þannig stjórna því hvar barist er og hvenær.
Sjá má stöðuna á víglínunum í Úkraínu í grófum dráttum á gagnvirku korti á vef hugveitunnar Institute for the study of war. Nýjustu gagnsókn Úkraínumanna í Kharkív virðist þó vanta á kortið.
Miklar vendingar á víglínunum
Eftir að Rússar hörfuðu frá Kænugarði í vor og einbeittu sér að Donbas-svæðinu í austurhluta landsins, þar sem birgðalínur Rússa voru mun styttri og þeir gátu beitt yfirburðum sínum í mannafla og stórskotaliði betur, náðu þeir hægum en stöðugum árangri gegn Úkraínumönnum.
Úkraínumenn fóru þá að beita HIMARS-eldflaugakerfum sérstaklega gegn stjórnstöðvum og birgðageymslum rússneska hersins í austri og seinna í suðri, eftir að Úkraínumenn opinberuðu að þeir ætluðu sér að reka Rússa frá Kherson-héraði.
Því brugðust Rússar við með að flytja hermenn frá víglínunum í norðri og austri til Kherson-héraðs í suðri.
Sókn Rússa í austri virðist nú hafa verið stöðvuð að mestu og eru Úkraínumenn að sækja fram gegn Rússum í bæði norðri og suðri. Sóknin í suðri hefur þó enn sem komið er reynst Úkraínumönnum dýrkeyptari og hafa fregnir borist af því að Rússar hafi sent marga af sínum vönustu og bestu hermönnum til Kherson.
Sjá einnig: Árangurinn í suðri dýrkeyptur Úkraínumönnum
#Ukraine : Ukrainian soldiers also managed to advance north of Balakliya, taking the town of Volokhiv Yar, which opens the road to #Izyum and to #Kupyansk.
— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) September 7, 2022
Russian forces in #Kharkiv are in a though position. pic.twitter.com/IWT2PKqezt