Fjárlög ársins 2023 voru kynnt í morgun. Þingmaður segir neyðaróp heilbrigðiskerfisins ekki virðast hafa náð í gegn.
Leggja á 5 prósenta lágmarksvörugjald á allar innfluttar bifreiðar á næsta ári. Fullur afsláttur af rafbílum heyrir sögunni til.
Helmingur þeirra laxa sem Fiskistofa veiddi í Mjólká í Arnarfirði til rannsóknar í síðasta mánuði reyndust vera eldislaxar.
Umhverfisráðherra segir stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins mikilvægan áfanga. Geysissvæðið sé mikilvægt fyrir alla landsmenn og reyndar gjörvalla heimsbyggðina.
Þetta og fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.