Dramaþátturinn Succession fékk flestar tilnefningar í ár eða 25 talsins. Þættirnir Ted Lasso og The White Lotus fengu 20 tilnefningar hvor. Þá voru tveir Íslendingar tilnefndir, þeir Daði Einarsson og Matthías Bjarnason en þeir unnu saman að tæknibrellum í þáttunum The WItcher. Þeir hlutu ekki verðlaun í nótt en teymið sem gerði tæknibrellur fyrir Boba Fett vann.
Þrátt fyrir 25 tilnefningar hlaut Succession einungis fjögur verðlaun í nótt. Sömuleiðis fékk Ted Lasso einungis fjórar styttur. Það var The White Lotus sem hlaut flest verðlaun í gær, tíu talsins. Næst komu þættirnir Euphoria og Squid Game með sex verðlaun.

Aðalleikari Squid Game, Lee Jung-jae, varð í gærkvöldi fyrsti asíski leikarinn til þess að vinna Emmy-verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki í dramaþáttaröð. Þá vann leikstjóri þáttanna, Hwang Dong-hyuk, verðlaun fyrir bestu leikstjórn í dramaþáttaröð, einnig fyrstur asískra.
Zendaya vann í annað skiptið Emmy-verðlaun fyrir bestu leikkonuna í aðalhlutverki í dramaþáttaröð fyrir þættina Euphoria. Hún vann einnig árið 2020 fyrir fyrstu þáttaröð Euphoria.

Michael Keaton var í ár tilnefndur í fyrsta sinn í átján ár og hlaut hann verðlaun fyrir besta leik í „limited“ þáttaröð en hann lék aðalhlutverk þáttanna Dopesick á Disney+.
Lizzo var í fyrsta skiptið tilnefnd til Emmy-verðlauna og vann hún verðlaun fyrir bestu raunveruleikakeppnisþætti fyrir þættina Lizzo‘s Watch Out for the Big Grrrls.

Hér fyrir neðan má sjá helstu sigurvegara gærkvöldsins.
Dramaþáttaröð
- Better Call Saul
- Euphoria
- Ozark
- Severance
- Squid Game
- Stranger Things
- Succession
- Yellowjackets
Gamanþáttaröð
- Abbott Elementary
- Barry
- Curb Your Enthusiasm
- Hacks
- The Marvelous Mrs. Maisel
- Only Murders in the Building)
- Ted Lasso
- What We Do in the Shadows
„Limited“ þáttaraðir
- Dopesick
- The Dropout
- Inventing Anna
- Pam and Tommy
- The White Lotus
Leikari í aðalhlutverki í dramaþáttaröð
- Jason Bateman, Ozark
- Brian Cox, Succession
- Lee Jung-jae, Squid Game
- Bob Odenkirk, Better Call Saul
- Adam Scott, Severance
- Jeremy Strong, Succession
Leikkona í aðalhlutverki í dramaþáttaröð
- Jodie Comer, Killing Eve
- Laura Linney, Ozark
- Melanie Lynskey, Yellowjackets
- Sandra Oh, Killing Eve
- Reese Witherspoon, The Morning Show
- Zendaya, Euphoria
Leikari í aðalhlutverki í gamanþáttaröð
- Donald Glover, Atlanta
- Bill Hader, Barry
- Nicholas Hoult, The Great
- Steve Martin, Only Murders in the Building
- Martin Short, Only Murders in the Building
- Jason Sudeikis, Ted Lasso
Leikkona í aðalhlutverki í gamanþáttaröð
- Rachel Brosnahan, The Marvelous Mrs. Maisel
- Quinta Brunson, Abbott Elementary
- Kaley Cuoco, The Flight Attendant
- Elle Fanning, The Great
- Issa Rae, Insecure
- Jean Smart, Hacks
Aðalleikari í stuttri þáttaröð eða sjónvarpsmynd
- Colin Firth, The Staircase
- Andrew Garfield, Under the Banner of Heaven
- Oscar Isaac, Scenes From a Marriage
- Michael Keaton, Dopesick
- Himesh Patel, Station Eleven
- Sebastian Stan, Pam and Tommy
Aðalleikkona í stuttri þáttaröð eða sjónvarpsmynd
- Toni Collette, The Staircase
- Julia Garner, Inventing Anna
- Lily James, Pam and Tommy
- Sarah Paulson, Impeachment: American Crime Story
- Margaret Qualley, Maid
- Amanda Seyfried, The Dropout