Ian var fjórða stigs fellibylur þegar hann gekk á land á Flórída með vindhraða upp á 67 metra á sekúndu. Hann var þá fimmti öflugasti fellibylur í sögu Bandaríkjanna hvað varðar vindhraða. Seint í gærkvöldi hafði dregið úr krafti bylsins sem var þá kominn niður á fyrsta stig. Hann stefnir nú út á Atlantshafið.
Ekki er vitað um mannskaða í Bandaríkjunum af völdum Ians en bátur með flóttamönnum frá Kúbu sökk í óveðrinu austur af Key West í gær. Bandaríska strandgæslan leitaði að 23 og fann þrjár manneskjur. Fjórum öðrum tókst að synda í land á Stock-eyju rétt austan við Key West. Enn er leitað að allt að tuttugu flóttamönnum úr lofti.
Mikil sjávarflóð fylgdu fellibylnum. Flóðvatn fyllti meðal annars neðri hæð bráðamóttöku sjúkrahúss í Port Charlotte á vesturströnd Flórída og vindur reif hluta af þakinu á gjörgæsludeild þess, að sögn AP-fréttastofunnar. Neyddist starfsfólk sjúkrahússins til þess að færa veikustu sjúklinga sína þar sem vatn flæddi inn á gjörgæsludeildina.
*RARE* first person view of storm surge. This camera is 6 feet off the ground on Estero Blvd in Fort Myers Beach, FL. Not sure how much longer it keeps working. You ll see it live only on @weatherchannel #Ian pic.twitter.com/WwHtvgVxjY
— Mike Bettes (@mikebettes) September 28, 2022
Í nágrannabænum Fort Myers bárust lögreglu símtöl frá fólki sem var fast inni í húsum sem flætt hafði inn í. Einnig bárust tilkynningar um áhyggjufullum aðstandendum fólks sem býr á flóðasvæðunum.
Nær öll heimili og fyrirtæki í þremur sýslum misstu rafmagn vegna veðurofsans, alls um tvær milljónir talsins.
Hamförunum er þó ekki lokið á Flórída. Búist er við því að sjávarflóð gæti náð tveimur metrum á norðausturströnd ríkisins í dag. Fellibylsviðvörun er enn í gildi víða. Ríkisstjórar Suður- og Norður-Karólínu, Georgíu og Virginíu hafa allir lýst yfir neyðarástandi ef leifar fellibyljarins skyldu stefna þangað.