Rússar hafa notað Lyman sem birgðastöð og fyrir árásir þeirra í Donetsk og yrði tap bæjarins mikið högg fyrir þá. Áðurnefndur talsmaður sagði að með því að frelsa Lyman opnaðist leið fyrir Úkraínumenn inn í Luhansk-hérað, sem Rússar stjórna að mestu.
Talsmaður úkraínska hersins sagði blaðamönnum í morgun að allt að fimm þúsund og fimm hundruð rússneskir hermenn væru umkringdir en talan gæti verið lægri vegna mikils mannfalls og tilrauna Rússa til að brjóta sér leið út úr umsátrinu.
Talsmaðurinn sagði einnig að einhverjir rússneskir hermenn væru að gefast upp og margir hefðu fallið eða særst.
Skömmu fyrir hádegið byrjuðu þó að berast fregnir af því að flestir rússneskir hermenn hefðu yfirgefið Lyman og barst myndefni af úkraínskum hermönnum í borginni. Einhverjir hermenn eru sagðir vera þar áfram en það er óstaðfest eins og er.
Ukraine's armed forces raising the blue and yellow flag above the #Lyman entrance sign on the outskirts of the city. "Stabilisation measures" are being carried out, eastern command says, amid reports that around 5000 Russian soldiers remain trapped inside pic.twitter.com/xWnp4YbkX7
— Luke Harding (@lukeharding1968) October 1, 2022
Þá er einnig enn óljóst hvort einhverjir rússneskir hermenn hafi verið handsamaðir, eins og áðurnefndur talsmaður hélt fram í morgun.
Flestir sagðir hafa hörfað
Það að Rússar hafi mögulega hörfða frá Lyman rímar við fregnir gærdagsins og það að Úkraínumenn hafi haldið einni undankomuleið opinni fyrir Rússa og undirbúið árásir á rússneskar hersveitir á ferðinni.
Þannig hefðu Úkraínumenn geta breytt skipulögðu undanhaldi í almennan flótta og valdið miklu mannfalli meðal Rússa.
Sjá einnig: Umkringdir rússneskir hermenn sagðir hörfa frá Lyman
Myndbandið sem sjá má hér að neðan er sagt hafa verið tekið í gær og sýna rússneska hermenn yfirgefa Lyman. Það vekur athygli að þar má sjá fjölmarga hefðbundna bíla í röðinni, sem rússneskir hermenn virðast hafa tekið. Engar stórskotaliðsárásir sjást þó sem gæti þýtt að Úkaínumönnum hafi ekki tekist að gera árásir á Rússa þegar þeir hörfuðu.
Þá eru Rússar sagðir hafa sprengt upp brú á eftir sér.
A column of Russians leaving the Lyman through the village of Zarichne, September 30. pic.twitter.com/02ZAO2oOQq
— English (@TpyxaNews) October 1, 2022
Þá eru einnig að berast óstaðfestar fregnir af því að Úkraínumenn hafi haldlagt mikið af hergögnum sem rússnekir hermenn eru sagðir hafa skilið eftir á undanhaldinu.
Hér að neðan má sjá myndband af T-90A skriðdreka sem Rússar eru sagðir hafa yfirgefið nærri Lyman. Þessir skriðdrekar eru meðal þeirra háþróuðustu sem framleiddir eru í Rússlandi.
#Ukraine: Another T-90A in good condition was abandoned by Russian forces in the East. pic.twitter.com/zbheT1zJat
— Ukraine Weapons Tracker (@UAWeapons) October 1, 2022
Innlimaði Lyman í gær
Bæði Donetsk og Luhansk eru meðal þeirra héraða sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti yfir í gær að hefðu verið innlimuð í rússneska sambandsríkið.
Rússar lýstu í gær yfir ólöglegri innlimun fjögurra héraða Úkraínu. Úkraínumenn segja það gera út af við möguleikann á friðarviðræðum og heita því að frelsa öll héruð landsins og þar á meðal Krímskaga, sem Rússar innlimuðu árið 2014.
Pútín var vígreifur í garð Vesturlanda í ræðu sem hann hélt í gær og gaf meðal annars til kynna að notkun kjarnorkuvopna kæmi til greina.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sem eru helstu bakhjarlar Úkraínu, sagði í gær að innlimunin og ógnanir Pútins myndu ekki breyta neinu. Bandaríkin og heimurinn allur myndi ekki viðurkenna innlimunina.
Ukrainian soldiers pulling down the Russian flag in recently liberated Shandryholove, Donetsk Oblast. pic.twitter.com/CSbLXB09iC
— Jimmy Rushton (@JimmySecUK) October 1, 2022