Ævintýrin og ADHD
Það eru óneitanlega margir kostir við ADHD sem kannski er ekki nógu oft talað um. Hin mikla sköpunargleði, óttaleysið og ofureinbeitingin, forvitnin og framtakssemin, krúttlega kæruleysið, ofurtrúin og hvatvísin.
Allt eru þetta stórkostlegir eiginleikar sem geta oft á tíðum leitt af sér enn stórkostlegri ævintýri.
Eins og með svo marga eiginleika er hægt að telja þá til bæði sem kosti og galla, allt fer það jú eftir aðstæðum, staði og stund, allt eftir rétta jafnvæginu, ekki satt?
Flækjurnar í hversdeginum
Án þess að kafa djúpt í frekari lýsingu eða skilgreiningu á sjálfri röskuninni vita flestir að henni geta fylgt allskonar áskoranir, flækjur og erfiðleikar. Hlutir sem geta haft mikil áhrif á sálarlíf einstaklinganna sjálfra sem og aðstandenda.
Krúttlega kæruleysið er kannski ekki svo krúttlegt þegar makinn þinn er líklegur til að týna veskinu sínu einu sinni á dag, setja bíllyklana óvart inn í ísskáp og vera svo seinn að sækja barnið á leikskólann því að lyklarnir „gufuðu bara upp.“
Hin aðdáunarverða ofurtrú og hvatvísi er kannski ekkert rosalega aðdáunarverð þegar makanum þínum dettur allt í einu í hug að ráðast í allsherjar framkvæmdir án þess að vera búinn að hugsa svo alvarlega út í tímasetningar, kostnaðaráætlun, já eða verklag.
Þolinmæðin og æðruleysið
Oft eru þetta kómísk atvik, sem hægt er að gera grín að og hlæja að saman. Góðar sögur. En stundum getur verið erfitt að finna hláturinn, þolinmæðina og æðruleysið þegar þessi atvik eða flækjur eru daglegt brauð.
Mikið hefur verið fjallað um ADHD og skólagöngu, ADHD á vinnumarkaði og ADHD tengt slysum, óhöppum eða afbrotum.
En hvað með ADHD og ástina?
Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem eru með ADHD greiningu og þeirra sem eru, eða hafa verið, í ástarsambandi með einstaklingi með ADHD greiningu.
Athugið að könnunin er tvískipt og fólk beðið um að svara þeirri könnun sem við á.
Einstaklingar með ADHD svara hér:
Makar einstaklinga með ADHD svara hér:
Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.