Rafíþróttir

Tilþrifin: Tight birtist úr myrkrinu og tekur út þrjá

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tight á Elko tilþrifgærkvöldsins.
Tight á Elko tilþrifgærkvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Tight í liði Ten5ion sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Tilþrif kvöldsins sýndi Tight um miðja viðureign þegar Ten5ion var undir gegn Breiðablik, 9-5. Flestir leikmenn leiksins höfðu þá safnast saman í kringum sprengjusvæði B á kortinu Vertigo, en reyksprengja gerði það að verkum að fæstir gátu séð hvað gekk á um stund.

Þrátt fyrir sjónleysið tókst Tight að taka út LiLLehhh í gegnum reykinn og fylgdi því svo eftir með því að taka niður wNkr og viRuz þegar sjónin lagaðist á nýjan leik.

Góð tilþrif Tight komu þó ekki í veg fyrir sigur Breiðabliks þar sem Tight og hans félagar í Ten5ion máttu að lokum þola enn eitt tapið, 16-9. Ten5ion er því enn án stiga á botni Ljósleiðaradeildarinnar eftir fimm leiki, en tilþrif Tight má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrif: Tight birtist úr myrkrinu og tekur út þrjá





×