Guðbjörg Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur á Egilsstöðum á von á barni á aðfangadag, sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Guðbjörg getur ekki fætt barnið í sínum landshluta, heldur þarf hún að flytja alla fjölskyldu sína til Akureyrar yfir hátíðarnar. Og bíða þar upp á von og óvon. Ástæðan: Fæðingardeildin í Neskaupstað er lokuð af því að ekki tekst að manna stöðu skurðlæknis.

„Þetta bara er eins og þetta er, svekkjandi auðvitað. Maður hefði bara viljað vera heima hjá sér. Við vorum líka ofboðslega ánægð með þjónustuna sem við fengum í Neskaupstað á fæðingardeildinni þar með eldri stelpuna og vildum endilega fá að fæða aftur þar,“ segir Guðbjörg í samtali við fréttastofu.
„Auðvitað vill maður bara fá að vera heima hjá sér eins lengi og maður getur. Ólétt kona vill bara fá að sofa í sínu rúmi og hafa sinn sófa til að hvíla sig í á milli.“
Eini skurðlæknirinn á sjúkrahúsinu í Neskaupstað er í fríi og afleysingin brást. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsinu er enn reynt eftir öllum leiðum að fá lækni á staðinn, en það virðist ekki ætla að ganga. Því voru barnshafandi konur látnar vita í tæka tíð. Guðbjörg segir ekki ganga að skurðlæknirinn sé persónulega ábyrgur fyrir því að starfsemin haldist gangandi og að hann geti því ekki tekið sér frí án þess að þetta gerist.

„Ég veit ekki hvar vandamálið er eða hvernig er hægt að breyta því, en þetta er náttúrulega eitthvað sem þarf að breytast. Við þurfum að hafa læknaþjónustu úti á landi og við þurfum að halda þessu opnu,“ segir Guðbjörg.
Þrír staðir öruggir
Opinberum skurðstofum hefur fækkað á undanförnum áratugum. Eitt sinn var skurðstofa á Húsavík og á Siglufirði, en það er liðin tíð. Árið 2013 lokaði skurðstofan í Vestmannaeyjum.
Á Ísafirði er staðan svipuð og í Neskaupstað. Þar er allt kapp lagt á að hafa ævinlega sólarhringsvakt skurðlæknis svo að alltaf sé að hægt að fæða, en það hefur einstaka sinnum brugðist, síðast núna í september.

Það eru því aðeins þrír staðir með alveg trausta möguleika á að fæða barn árið um kring, nefnilega Akureyri, Akranes og Reykjavík.