Skoðun

Hvað næst? Sykur­skattur?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Fyrirætlanir stjórnvalda um veggjöld fela einfaldlega í sér skattahækkun. Bifreiðaeigendum, sem þegar eru að greiða háar fjárhæðir til hins opinbera vegna bifreiða sinna, verður þannig gert að greiða enn meira með þeim rökum að eigendur annarra bifreiða séu ekki lengur að gera það. Skilaboðin til þeirra eru þau að vilji þeir losna við þessa auknu skattheimtu geti þeir einfaldlega bara keypt sér öðruvísi bifreiðar.

Talað er gjarnan um það að þeir sem noti tiltekna opinbera þjónustu eigi að greiða fyrir hana. Það er allt gott og blessað. Bifreiðaeigendur hafa hins vegar greitt fúlgur fjár fyrir umrædda þjónustu áratugum saman. Stór hluti af þeim fjármunum hefur ekki farið í samgöngumál sem var réttlætingin fyrir gjaldtökunni. Þeir hafa farið í annað. Og nú vantar meira. Eins og alltaf. Ekki sízt til þess að fjármagna Borgarlínuna!

Minnt var réttilega á það í ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar á dögunum að skattkerfinu ætti ekki að beita til þess að stýra neyzluhegðun og spurt að gefnu tilefni hvort vænta mætti sykurskatts í náinni framtíð. Hver er enda í raun munurinn á því að stjórnvöld reyni að stjórna því hvernig ökutæki fólk kaupir og því hvort það kýs að neyta sykraðra matvæla eða ekki?

Viðbrögð úr röðum þeirra, sem varið hafa þessa neyzlustýringu, hafa þannig gjarnan verið þau að segja að fólk geti einfaldlega fengið sér rafbíl til þess að þurfa ekki að greiða eins mikið til hins opinbera. Það væri vitanlega eins hægt að segja fólki að hætta einfaldlega að neyta sykraðra matvæla til þess að þurfa ekki að greiða sykurskatt. Hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að stýra neyzluhegðun?

Vafalaust hljóma „skattalegir hvatar“ vel í eyrum margra en í raun er þar ekki um annað að ræða en fegrað orðlag yfir opinbera neyzlustýringu. Væri ekki nær að láta einfaldlega markaðinn um málið? Er það ekki nægur hvati að rafmagn sé miklu ódýrari orkugjafi en bensíns og dísilolía? Er þannig ekki rétt að láta slíka markaðslega hvata um málið? Er það ekki í anda Sjálfstæðisflokksins? Þarf líka opinbera neyzlustýringu?

Vonandi bera landsfundarfulltrúar gæfu til þess að hafna slíkri opinberri neyzlustýringu. Talsvert skárra væri ef önnur gjöld væru lækkuð á móti á umrædda bifreiðaeigendur sem næmi samsvarandi fjárhæðum. Það stendur hins vegar ekki til. Fyrir vikið er einfaldlega um skattahækkun að ræða hvernig sem á málið er litið. Þeir eiga bæði að greiða gömlu opinberu gjöldin og þau nýju. Nema þeir breyti neyzlu sinni.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×