Dagurinn markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi er í forsvari fyrir ásamt fjölda annarra öflugra félagasamtaka hér á landi. Gangan hefur ekki farið fram síðustu tvö ár vegna COVID-19 takmarkana.
Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er Konur, líf, frelsi, sem er jafnframt slagorð mótmælanna sem hafa staðið yfir í Íran í rúma þrjá mánuði. Zahra Mesbah frá Afganistan og Zohreh Aria frá Íran munu leiða gönguna í ár og jafnframt segja nokkur orð áður en gangan hefst. Auk þeirra munu fleiri einstaklingar frá Afganistan og Íran ganga fremst í göngunni.

Sýna samstöðu gegn kvenmorðum
„Hið alþjóðlega 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi beinir kastljósinu í ár að kvenmorðum (e. femicide). Samkvæmt tölum frá UN Women voru 81.100 konur um allan heim myrtar árið 2021. Þar af voru um 45.000 þeirra myrtar af eiginmanni sínum, sambýlismanni, unnusta eða öðrum nátengdum karlmönnum. Þetta samsvarar því að kona sé myrt á heimili sínu á 11 mínútna fresti,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.
„Kvenmorð eru skilgreind sem morð á konum vegna kyns og eru því gróf brot á grunnmannréttindum kvenna og rétti þeirra til lífs, frelsis og öryggis. Í tilfellum Afganistan og Íran, eru kvennmorð einnig framin af ógnarstjórn ríkjanna m.a. fyrir brot á harðneskjulegum lögum sem takmarka réttindi kvenna til frelsis. Með því að taka þátt í Ljósagöngu UN Women á Íslandi í ár, sýnum við samstöðu með því hugrakka fólki sem leggur líf sitt í hættu í þágu kvenréttinda.“

Gangan hefst klukkan 17:00 á Arnarhóli við styttu Ingólfs Arnarsonar og gengið verður suður Lækjargötu og upp Amtmannsstíg að Bríetartorgi. Harpa verður lýst upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis.
„Á Bríetartorgi verður síðan boðið upp á heitt kakó og Gradualekór Langholtskirkju mun flytja nokkur lög. Kerti verða seld á staðnum á 500 kr til styrkar verkefnum UN Women. UN Women á Íslandi hvetur öll til að mæta og sýna samstöðu,“ segir í tilkynningunni.