Blaðamaður AP fréttaveitunnar ræddi við 24 ára lögregluþjón í bænum Chornobaivka, sem sagði frá því að rússneskir hermenn hefðu ruðst inn á heimili hans. Dmytro Bilyi sagði þá hafa hótað því að móðir hans og bróðir yrðu látin hverfa ef hann léti þá ekki fá skammbyssuna sem fylgdi lögreglustarfinu.
Bilyi sagðist hafa látið þá hafa byssuna en þeir hafi samt handsamað hann og flutt hann í fangelsið í Kherson. Þar hafi þeir pyntað hann í marga daga og meðal annars með því að gefa honum raflost í eistun og eyrun.
Hann lýsir upplifuninni eins og blóðið í honum hafi byrjað að sjóða og bruninn hafi verið gífurlega sársaukafullur.
Faðir Bilyi er í úkraínska hernum og rússnesku hermennirnir vildu meðal annars vita hvar hann væri.
Frásögnum sem þessum hefur farið fjölgandi en þær hafa borist frá öllum þeim svæðum sem Rússar hafa hörfað frá, frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst í gær. Hvort sem það er af svæðinu norður af Kænugarði, í Kharkív-héraði eða í Kherson.
Sjá einnig: Beittu íbúa Izyum kerfisbundnum pyntingum
Lögreglan í Úkraínu segist hafa rúmlega 460 stríðsglæpi til rannsóknar frá frelsuðum svæðum Kherson-héraðs. Talsmaður sagði AP að vitað væri til þess að fólk hefði verið pyntað í minnst tveimur lögreglustöðvum, fangelsi, heilsugæslustöð og annars staðar.
Fréttaveitan hefur eftir sérfræðingum í málefnum mannréttinda að frásagnirnar hingað til séu líklega bara upphafið. Þeim muni fjölga mjög, miðað við þær frásagnir sem bárust frá Kherson á þeim tíma sem Rússar héldu borginni. Þá gæti verið ómögulegt að ná utan um umfangið vegna þess að Rússar hafi stjórnað borginni í átta mánuði. Erfitt gæti reynst að finna sönnunargögn frá öllum þessum tíma.
Sjá einnig: 75 ára kona barin, skorin og nauðgað
Blaðamenn fréttaveitunnar ræddu við fimm einstaklinga sem sögðust hafa verið pyntaðir, haldið föngum af Rússum eða þekkt fólk sem hvarf. Þeir sögðu Rússa virst hafa handsamað fólk af handahófi en stundum var það gert þegar fólk sem starfaði með Rússum benti á fólk sem það taldi vinna með úkraínska hernum.
Fólk sagðist hafa verið haldið í þéttsetnum klefum og látið læra rússneska þjóðsönginn á meðan þau hlustuðu á öskur fólks sem verið var að pynta þar nærri.
Skotnir með bundnar hendur
Í grein New York Times er skrifað um fund líka sex manna í bænum Pravdyne skammt frá Kherson-borg. Þeir voru teknir af lífi af rússneskum hermönnum, skotnir í höfuðið með hendur bundnar fyrir aftan bak.
Íbúar Pravdyne vita ekki hvað mennirnir heita fullum nöfnum en þeir voru utanbæjarmenn og höfðu verið fengnir til að vinna við öryggisgæslu fyrir úkraínskt landbúnaðarfyrirtæki.
Í samtali við blaðamann NYT segja íbúar að einn mannanna hafi heitið Vlad. Hann hafi verið vinalegur og hafi verið í sambandi við stúlku í bænum sem hafði verið beitt ofbeldi af föður sínum. Íbúarnir segja að faðirinn hafi leitað til rússneskra hermanna og sakað Vlad og hina öryggisverðina um að njósna um hermennina fyrir úkraínska herinn.

Anatoliy Sikoza, sem bjó í næsta húsi við öryggisverðina, segist hafa vaknað um miðjan apríl við háværa sprengingu. Hann hljóp út og sá að húsið var hrunið. Þar sá hann einnig lík mannanna sex og stúlkunnar.
Sikoza segist viss um að þau hefðu ekki dáið í sprengingunni enda hafi mennirnir verið með hendur bundnar fyrir aftan bak og bundið fyrir augun. Þá hafi áverkar á stúlkunni gefið til kynna að hún hefði verið kyrkt.
Rússneskir hermenn bönnuðu Sikoza að grafa líkin. Þau hafi því legið í rústum hússins og þar hafi villihundar komist í þau. Fimm vikum eftir sprenginguna fékk hann loks leyfi til að grafa líkin og gróf hann mennina sex. Fjölskylda stúlkunnar gróf lík hennar annars staðar.