Árið 2018 bárust fréttir af því að japanski tískumógúllinn og milljarðamæringurinn Yusaku Maezawa yrði fyrsti almenni borgarinn sem flygi með Space X, geimflaug í eigu Elon Musk, í kringum tunglið. Árið 2021 tilkynnti Maezava að hann hyggðist velja átta manna áhöfn listafólks til að fara með sér.
Karim Ilya er í hópi listamannanna sem Maezawa valdi til að fara með sér í fyrirhugaða geimför. Karim, sem er ljósmyndari, á íslenska konu og hefur verið búsettur hér á landi í tæp tvö ár.
Aðspurður hvernig þetta hafi komið til, rifjar Karim upp atvik þegar hann sat upp í tré með vinkonu sinni fyrir tíu árum. „Ég sagði henni að einn daginn myndi ég taka mynd af jörðinni frá tunglinu. Hún sendi mér slóð á þetta verkefni, Dear Moon. Ég skoðaði það, og sótti um. Eftir langt umsóknarferli, viðtöl og fundi komst ég að því að ég hafði verið valinn til að vera partur af áhöfninni.“

Karim hefur ferðast og myndað út um allan heim og í öllum mögulegum kringumstæðum. Þessi ferð verður þó ólík öllum öðrum, en hvernig skyldi maður undirbúa sig fyrir slíkt ferðalag?
„Ég hef verið að reyna ná meiri tengslum við sjálfan mig; með hugleiðslu og æfingum. Ég hef myndað neðansjávar, á köldum stöðum og í eyðimörkum, en að mynda í þyngdarleysi í geymnum er eitthvað sem ég er ekki viss um að raunverulega sé hægt að undirbúa sig fyrir.“
Áætlað er að hópurinn haldi í ferðina á næsta ári. Þetta verður fyrsta mannaða geimferðin frá árinu 1972, en aðeins hafa 24 manneskjur, allar frá Bandaríkjunum, farið til tunglins. Þar af hafa 12 þeirra lent á yfirborði tungslins.
Karim er að sögn ákaflega spenntur fyrir þessu mikla ævintýri en viðurkennir þó, eðlilega, að það örli líka á kvíða.
„Já, ég er svolítið kvíðinn en á sama tíma er ég oft í aðstæðum þar sem ég velti fyrir mér hvort þetta sé mitt síðasta. Ég ljósmynda reglulega neðansjávar með stórum sverðfiskum, mynda eldfjöll og svo framvegis. Lífið býður upp á margskonar hættur, bara það að ganga í gegnum stórborg getur verið lífshættulegt. Ég treysti vísindamönnunum og vélfræðingunum sem vinna að því að gera þessa ferð örugga og veit að það verður ekki farið af stað fyrr en það er pottþétt.“

Karim hefur alltaf verið heillaður af tunglinu.
„Allir hafa séð tunglið og ábyggilega á einhverjum tímapunkti velt því fyrir sér. Það hefur svo mikil áhrif, ekki bara á líf okkar heldur alls á jörðinni. Það er svo heillandi. Mig hefur oft dreymt um að heimsækja himingeiminn og aðrar plánetur. Að fá þetta tækifæri til að fara í þessa ferð og sjá jörðina okkar sem heild, frá geimnum, að sjá heildarmyndina; ég vona að það gefi mér möguleika á því að tengja saman punktana og átta mig á því hvernig við tengjumst þessum veruleika.
Hægt er að fylgjast með Karim á Instagram hér.
Heimasíðu hans má finna hér.