Meðfylgjandi er unnið upp úr fréttatilkynningu frá Brimborg.
Ford Bronco Wildtrak og Raptor verða til sýnis í sýningarsölum Ford á Íslandi á Bíldshöfða 6 og í Brimborg á Akureyri dagana 16. og 17. desember. Að sjálfsögðu verður hægt að bóka reynsluakstur og skoða skemmtilegan Bronco-varning.
Ford Bronco er öflugur jeppi og er sem sniðinn fyrir íslenskar aðstæður
• Sjö G.O.A.T akstursstillingar
• Öflugt H.O.S.S fjöðrunarkerfi
• Rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi
• 330-418 hestöfl, 10 gíra sjálfskipting

Ford Bronco er Íslendingum mjög vel kunnugur enda var hann óhemjuvinsæll fyrir nokkrum áratugum og hans helstu aðdáendur hafa engu gleymt. Hönnuðir nýja Ford Bronco sóttu innblástur í gamla útlitið frá árinu 1966 og héldu í hrátt yfirbragð og ævintýraandann sem vissulega liggur yfir jeppanum.
Allt frá árinu 1966 þegar Ford Bronco kom fyrst fram á sjónarsviðið hefur jeppinn verið táknmynd frelsis og ævintýra. Líkt og forðum daga er auðvelt fyrir notendur að breyta jeppanum eftir aðstæðum hverju sinni. Til dæmis er hægt að fjarlægja hurðir og þak af bílnum.
Ísland hefur forskot á Evrópumarkað
Brimborg náði einstökum samningum við Ford í Bandaríkjunum og því komu 30 eintök af Ford Bronco til landsins, langt á undan öðrum mörkuðum í Evrópu. Óljóst er hvort eða hvenær fleiri eintök koma til Brimborgar og örfáir bílar eru enn á lausu.