Reykjavíkurborg ákvað að höfðu samráði við Veitur að hafa sundlaugar borgarinnar áfram lokaðar í dag. Það sama á við um Ylströndina í Nauthólsvík. Unnið er að því að ná upp fullum vatnsforða eftir bilun í Hellisheiðarvirkjun en viðgerðinni er lokið. Staðan verður metin eftir klukkan fjögur í dag varðandi opnun sundlauganna á morgun. Vonast er til að hægt verði að opna laugarnar að einhverju leyti eða að fullu í fyrramálið. Sundlaugunum var lokað fyrir hádegi í gær og hefur starfsfólkið síðan notað tímann til að þrífa og dytta að.
„Það voru bara sett upp þrifaplön og tækifærið nýtt til þess að þrífa svæði staði og svoleiðis sem við eigum mjög erfitt með að þrífa og fara með mjög sterk efni á og svoleiðis. Það er búið að vera svona eiginlega sólarhringurinn síðan að hamast á því bara á fullu. Hvort sem það eru búningsklefar, niðurföll, rennur, gömul húðfita einhvers staðar þar sem að við höfum ekki komist með sterk efni til þess að hreinsa. Það er búið að vera verkefnið síðasta sólarhringinn og allir verið mjög öflugir,“ segir Árni Jónsson forstöðumaður Laugardalslaugarinnar.

Árni segir það sjaldgjæft að lauginni sé lokað.
„Einu sinni á ári í Laugardalslaug. Það er lokað á jóladag og verður sem sagt lokað núna á jóladag. Að öðru leyti erum við bara alltaf með opið. Opnum snemma og lokum seint sem er algjört æði sko. Það eru algjör forréttindi að hafa sundlaug. Sérstaklega við svona aðstæður.“
Árni segir að í raun og veru sé nú ein allsherjar jólahreingerning að eiga sér stað í Laugardalslauginni.
„Það verður frábært að koma í jólabaðið til okkar á aðfangadag því þá verður allt svo hreint og fínt hérna. Ég held að það verði enginn hreinni á jólunum heldur en þessi jól.“
Hann vonast til að hægt verði að opna aftur á morgun.
„Við fáum að vita bara seinni partinn hvort það sé einhver möguleiki af því við viljum gjarnan opna fyrir góða fólkið okkar. Góðu gestina.“