Fjármálaráðherra afhenti Betri samgöngum Keldnalandið til uppbyggingar á íbúða- og atvinnuhúsnæði í gær sem hluta af framlagi ríkisins samkvæmt samgöngusáttmála við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs segir landið er mjög stórt eða samanlagt 116 hektarar.
„Þetta er gríðarlega stórt skref. Það sem meira er að Keldnaholtið bætist nú við framlag ríkisins til fjármögnunar á samgöngusáttmálanum,“ segir Einar. En allur ágóði af sölu lóða á landinu verður að framlagi ríkisins til Betri byggðar.
Uppbyggingu á þessu svæði var flýtt í sáttmála nýju meirihlutaflokkanna í borginni síðast liðið vor að kröfu Framsóknarflokksins.

„Vegna þess að það vantar húsnæði. Við sjáum að fasteignamarkaðurinn er yfir spenntur. Húsnæðisverðið er of hátt og það þarf að auka framboð. Það hefur stundum verið talað um að lóðaframboð sé af skornum skammti í Reykjavík. Hér erum við að bæta við heilum nýjum borgarhluta af óruddu landi,“ segir formaður borgarráðs.
Strax í janúar verður farið í alþjóðlega samkeppni um skipulag nýja hverfisins. Einar vonar að niðurstöður hennar liggi fyrir næsta haust og er bjartsýnn á að skipulagsvinnan í framhaldinu gangi vel.
„Ef það gengur hratt og vel væri náttúrlega alger draumur að geta stungið niður skóflu árið 2025.“

Og þetta hverfi tekur mið af nýjum viðmiðum borgarinnar um samgöngur og svo framvegis?
„Já, við erum að styrkja þarna innviði í austurhluta borgarinnar,“ segir Einar. Þarna verði blönduð byggð auk húsnæðis fyrir þjónustu og annað atvinuhúsnæði sem muni styrkja hverfin í kring ásamt lagningu borgarlínu. Þetta væri stærsta byggingarverkefni í borginni í áratugi og á við hálft Breiðholt.
„Sjö til níu þúsund íbúðir, 150 þúsund fermetrar af atvinnurými. En það ræðst allt af niðurstöðu hugmyndasamkeppninnar hvernig hverfið verður skipulagt. Það skiptir máli að hverfið sé bæði þétt en líka þannig að þar verði fjölbreyttar tegundir af húsnæði,“ segir Einar Þorsteinsson.