Vísi barst ábending þess efnis að sést hafi til þingmannsins fara í ökutíma. Ábendingin barst frá pólitískum andstæðingi Jóhanns Páls og sá sem hana setti fram taldi næsta víst að þingmaðurinn hlyti að hafa misst prófið, það gæti bara ekki staðist að sá sem er að nálgast miðjan aldur, þrítugur maðurinn, væri að taka bílpróf fyrsta sinni.
En sú er síður en svo raunin. Vísir kannaði málið, setti sig í samband við Jóhann Pál og spurði hann hreint út af hverju hann væri að taka bílpróf, kominn á þennan aldur?
Vill geta keyrt unnustuna á fæðingardeildina
„„Ég hef aldrei lært á bíl,“ svarar Jóhann Páll og ljóst að honum finnst kómískt að þurfa að standa fyrir svörum í þessum efnum.
„Ég bara nennti því ómögulega þegar ég var í menntaskóla. Kannski spilaði inn í að ég á alltof góða foreldra og þegar ég var lítill skutluðu þau mér út um hvippinn og hvappinn. Við Anna fluttum svo til Bretlands og bjuggum þar í mörg ár, lengst af í Cambridge, og þar þurftum við engan bíl.“
Þannig að… þú hefur ekki misst prófið?
„Nei.“

Ók. Ástæðan fyrir því að Jóhann Páll er að taka bílpróf núna er reyndar gleðileg. Því hann og unnusta hans, Anna Bergljót Gunnarsdóttir, eiga von á barni.
„Já. Nú erum við komin heim og eigum von á barni. Og þá þarf maður að rífa sig í gang. Ég vil auðvitað geta keyrt Önnu á fæðingardeildina – og keyrt okkur öll heim af fæðingardeildinni.“
Ekki á skjön við stefnu um bíllausan lífsstíl
Anna Bergljót er hins vegar með bílpróf og þau hafa fest kaup á bifreið að gerðinni Honda Jazz. Og þingmanninum segir spurður að sér sækist ökunámið sérdeilis vel.
„Ég hef sinnt ökunámi meðfram þingstörfum og sóst námið vel. Notalegt að eiga stund milli stríða með Sveini Ingimarssyni sem er afbragðs ökukennari, og hefur sýnt mér ótrúlega þolinmæði.“
Og það sem meira er, nú færist aukin spenna í leikinn því prófið er á næsta leyti sem er líka eins gott.

„Ég stóðst bóklega prófið með bravúr en nú er að sjá hvernig fer með verklega. Ég er bjartsýnn á að það náist áður en barnið kemur í heiminn.“
En, er það ekki á skjön við stefnu Samfylkingarinnar að vera að fá sér bílpróf og bíl, er bíllaus lífsstíll ekki málið?
„Það held ég nú ekki,“ segir Jóhann Páll og hlær við. „Stefna Samfylkingarinnar er að fólk eigi að hafa raunverulegt val um ferðamáta, ekki að fólk eigi að skammast sín fyrir að keyra einkabíl. Það verður að styðja miklu betur við almenningssamgöngur svo bíllaus lífstíll verði raunhæfari og eftirsóknarverðari kostur fyrir fleiri.“