„Það eru svo margir að búa til streitu með því að segja alls konar við okkur. Maður fær sektarkennd og samviskubit yfir því að vera ekki búin að gera allt,“ segir Ásgerður Guðmundsdóttir frá Vinnuheilsu sem ræddi málið við Ósk Gunnars á FM957.
Jólin á samfélagsmiðlum oft bara tilbúningur
Þessa dagana eru samfélagsmiðlar fullir af brosandi börnum, skreyttum heimilum, heimabökuðu gúmmulaði og fullkomnum pökkum.
„Þetta er oft bara tilbúningur,“ segir Ásgerður sem minnir fólk á að vera ekki að miða sig við það sem þeir sjá á samfélagsmiðlum. Desember sé erfiður mánuður fyrir marga og það þurfi ekki allt að vera fullkomið fyrir jólin.
„Það er alveg ástæða fyrir því að fólk er kannski ekkert búið að gera allt. Það er að drukkna í vinnu. Það eru kannski margir með fjárhagsáhyggjur og það er einmanaleiki. Það eru veikindi og alls konar í gangi.“

„Rosaleg geðveiki í gangi“
Þá geta spurningar eins og „ertu búin að kaupa allar gjafir?“ eða „ertu búin að öllu fyrir jólin?“ verið mjög streituvaldandi og við ættum að forðast það að leggja áherslu á þessa hluti sem skipta í raun engu máli þegar upp er staðið.
„Það eru allir að gera sitt á sínum eigin forsendum og maður getur stressast svo mikið upp þegar svona er sagt við mann. Maður heyrir alveg og sér það til dæmis á umferðinni að það er rosaleg geðveiki í gangi. Þessi tími er alveg sérstaklega streituvaldandi,“ segir Ásgerður.
Jólin koma sama hvað
Hún hvetur fólk til þess að staldra við, sleppa tökunum og leyfa ekki utanaðkomandi pressu að ná tökum á sér. Það þurfi ekki allt að vera heimabakað, það megi kaupa hlutina tilbúna úti í búð.
Ef fólk á eftir að græja síðustu jólagjafirnar eða klára einhverja hluti fyrir jól, ætti það að setjast niður og gera lista, forgangsraða og gera hlutina á sínum eigin forsendum.
„Jólin koma alltaf ár eftir ár. Þótt ég komist ekki í klippingu, vax eða neglur, þá skiptir það engu máli.“
Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Ásgerði í heild sinni.