Vegan dýranna vegna Rósa Líf Darradóttir skrifar 13. janúar 2023 11:01 Veganúar Fjöldi fólks mátar sig við vegan lífsstílinn í janúarmánuði. Fyrir því liggja yfirleitt umhverfis-, heilsufars- eða dýraverndunarsjónarmið. Mér þykir þáttur dýra vega þyngst, þó hinar ástæðurnar séu einnig göfugar. Ég hef alla tíð verið hænd að dýrum og sóst eftir félagsskap þeirra. Átt þau að vinum og skynjað í þeim eiginleika sem margir telja einskorðast við mannfólk. Ég hef kynnt mér aðstæður dýra í matvælaiðnaði og þjáninguna sem þau upplifa. Þessi dýr eru gædd sömu eiginleikum og kisurnar, hundarnir og hestarnir í lífi mínu. Í kjölfarið var það rökrétt ákvörðun fyrir mig að útvíkka samkenndina út fyrir eigin dýrategund og gæludýr. Sýna kærleik til dýra í orði og á borði. Hið gleðilega er að þessi ákvörðun mín útheimtir engar fórnir í lífsgæðum þar sem grænkerafæði er fjölbreytt, dásamlega gómsætt og næringarríkt. Ísland best í heimi Íslendingar eru gjarnir á að telja sér trú um að hérlendis sé meðferð dýra eins og best gerist í heiminum. Ég var sannarlega ein af þeim. En staðreyndirnar tala sínu máli. Við erum eftirbátar flestra siðmenntaðra þjóða hvað þetta varðar. Blóðmerahald, loðdýrarækt og hvalveiðar viðgangast þrátt fyrir að góð dýravelferðarlög séu í gildi. Brellan virðist vera sú að ekki þurfi að fylgja þeim svo lengi sem athæfið skilar arði. Mat hagsmunaaðila og fjárhagslegur ávinningur skákar öllu. Þauleldi fær að þrífast í augljósri mótsögn við fyrrnefnd lög. Svín, minkar, kjúklingar, varphænur og eldisfiskar eru haldin við ömurlegar og ónáttúrlegar aðstæður. Velferð þeirra er fórnað fyrir hámörkun afurða sem framleiddar eru við lágmarks framleiðslukostnað. Þau eru haldin þröngt og fá engin tækifæri til að stunda sitt eðlilega atferli. Iðnaður þessi fær stóra ríkisstyrki. Til að mynda fengu loðdýrabændur 160 milljón kr. styrk árið 2020. Alifugla- og svínabændur fengu 450 milljón kr. styrk í sumar. Eftirlit með velferð dýra Mörg fylgdust með hópi vanræktra hrossa í haust. Hross þessi höfðu verið innilokuð til lengri tíma og vanfóðruð. Matvælastofnun var gert vart um ástand hrossana í sumar. Þrátt fyrir að mál þetta hafi verið “í ferli” endar það á þann veg að stór hluti hrossana er felldur vegna vanrækslu. Þetta er niðurstaðan í máli sem hlaut mikla athygli almennings og fjölmiðla. Þetta gefur hugmynd um hvernig þetta eftirlitskerfi virkar fyrir hin dýrin sem búa innilokuð í skemmum sem enginn fær að sjá eða heyra af. Meðferð dýra í mótsögn við þekkingu Við lifum á einkennilegum tímum. Við höfum aldrei haft jafn mikla þekkingu á dýrum og nú. Það er vísindalega staðfest og samfélagslega viðurkennt að dýr eru skyni gæddar verur með eigin upplifanir og eiga sér tilfinningalíf líkt og við. Samt er það svo að við höfum aldrei farið eins illa með dýr og við gerum nú. Við fjöldaframleiðum þau í kerfi sem neitar þeim um réttindi til lífs í samræmi við þeirra eðli. Einungis í þeim tilgangi að drepa þau til að borða. Það er ekki af illri nauðsyn sem við gerum þetta, það er val okkar og krafa um stöðugt flæði af ódýrum dýraafurðum í matvöruverslunum. Sú skelfilega þróun hefur átt sér stað í flestum löndum að búum hefur fækkað og þau stækkað. “Afkastageta” hefur aukist og fjöldi slátraðra landdýra hefur rúmlega tífaldast frá árinu 1961. Á sama tíma hefur mannfjöldi rúmlega tvöfaldast. Nú slátrum við um 10 dýrum fyrir hvert mannsbarn í stað tveggja árið 1960. Þessar tölur byggja á kjötframleiðslu og ná ekki yfir dýr í mjólkur- og eggjaframleiðslu. Þær tæpu þrjár billjónir fiska sem við drepum árlega eru heldur ekki taldir með. Þekking okkar er sífellt að aukast en alltaf kemur það betur í ljós þessi tilhneiging mannsins til þess að vanmeta greind og tilfinningalíf dýra. Við þurfum ekki að fara lengra aftur í tímann en til ársins 1918 þegar Ingunn Einarsdóttir frumkvöðull í dýravernd reyndi að sannfæra landann um að önnur dýr ættu margt sameiginlegt með mannfólki við misjafnar undirtektir en hún sagði: „Við ættum oftar en við gerum, að muna eftir því, í umgengninni við dýrin, að margt er sameiginlegt meðþeim og okkur mönnunum. Þau hafa flestar hinar sömu kenndir og maðurinn, bæði líkams- og sálarlegs eðlis, sem að mörgu leyti standa kenndum mannsins lítið neðar, ef það er þá nokkuð. Fara því skilyrðin fyrir hinni líkamlegu líðan mjög saman hjá mönnum og dýrum. Maðurinn finnur sársauka. Dýrin kenna líka sárt til. Maðurinn veikist. Dýrin veikjast líka. Líkt er því farið með andlega líðan, eða sálarlega kenndir. Maðurinn gleðst, það gera dýrin líka. Maðurinn hryggist. Það gera dýrin líka. Maðurinn reiðist. Það gera dýrin líka. Maðurinn hræðist. Það gera dýrin líka.” - Ingunn Einarsdóttir, 1918 Árið 1960 gerði dýra- og mannfræðingurinn Jane Goodall þá merkisuppgötvun að simpansar nota verkfæri. Það varð til þess að vísindafólk þurfti að endurskilgreina hvað það þýðir að vera mennskur. Þar til þá héldum við að eina dýrið sem notaði verkfæri væru menn. Í dag vitum við að fleiri dýr nota verkfæri eins og t.d. svín, fílar, hrafnar og kolkrabbar. Við vitum að rottur búa yfir samkennd og bjarga félögum sínum úr neyð frekar en að þiggja nammibita. Við vitum að svín kunna að meta tónlist og geta lært að spila tölvuspil. Við vitum að hvalir og fílar syrgja fráfallna vini. Við vitum að hestar eru næmir á tilfinningaástand annarra hesta og mannfólks. Það var ekki fyrr upp úr tíunda áratugnum að loks ríkja sættir innan vísindasamfélagsins um hið augljósa, dýr skynja sársauka líkt og menn. Leikur að eldi Loftslagsváin er yfirvofandi og ljóst er að jörðin þolir ekki áframhaldandi óhófsneyslu mannkyns á dýraafurðum. Aðrar og ekki síðri ógnir sem steðja að framtíð okkar eru sýklalyfjaónæmi og heimsfaraldrar. Rekja má allt að 70% notkun sýklalyfja á heimsvísu til landbúnaðar. Hvernig dýr eru alin í matvælaiðnaði um allan heim, við hámarksþéttleika, innan um óhreinindi og í lélegum loftgæðum eru einmitt kjöraðstæður fyrir fjölónæmar bakteríur og stökkbreyttar veirur til að ná sér á skrið. Hefðir - vondur siðferðilegur áttaviti Grace Hopper tölvunarfræðingur, doktor í stærðfræði og undirflotaforingi sagði eitt sinn að hættulegasti frasi tungumálsins væri: „Við höfum alltaf gert þetta svona”. Mér þykir það eiga vel við í samtalinu um neyslu dýraafurða. Grænkerar eru hópur fólks sem deilir þeirri hugsjón að það sé siðferðilega rétt að standa gegn ofbeldi dýra og virða rétt þeirra til lífs án þjáninga. Þessi hópur fær gjarnan að heyra að afstaða þeirra sé öfgakennd. Við sjáum það í gegnum mannkynssöguna hvort sem það er afnám þrælahalds, réttindabarátta kvenna eða hinsegin fólks að siðferðismeðvitund eykst í takt við aukna þekkingu samfélags þess tíma. Alltaf heyrast þó háværar raddir sem reyna að réttlæta óréttlætið vegna menningarlegra hefða. Oftar en ekki liggja öfgarnar einmitt í þeim. Ef við myndum láta hefðirnar stjórna okkur, þá yrði algjör stöðnun í siðferðisþróun. En vegan hreyfingin er einmitt hluti af þessari þróun, hún er réttindabarátta í þágu þeirra sem minna mega sín og þeirra sem ekki geta varið sig. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vegan Mest lesið Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar Skoðun Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson skrifar Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól Davíð Michelsen skrifar Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðið deyr í myrkrinu Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar Skoðun Færni til framtíðar Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lestu Gaza Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar Skoðun 10 ár og bull í lokin Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk Gísli Gunnar Marteinsson skrifar Skoðun Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Bætt skipulag fyrir stúdenta Aðalsteinn Haukur Sverrisson ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði: Offramboð af röngu meðaltali Egill Lúðvíksson skrifar Sjá meira
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar
Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar
Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar
Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar
Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun