Rafíþróttir

Fyrsta viðureign FRÍS í beinni á morgun: FVA ætlar sér aftur í úrslit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Átta liða úrslit Framhaldsskólaleikanna hefjast annað kvöld.
Átta liða úrslit Framhaldsskólaleikanna hefjast annað kvöld. Meta Productions

Eftir langa og stranga forkeppni er loksins komið að átta liða úrslitum Framhaldsskólaleika Rafíðþróttasamtaka Íslands, FRÍS, sem sýnd verða í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport.

Þeir átta skólar sem tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum eru Framhaldsskóli Vesturlands á Akranesi (FVA), Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (FG), Tækniskólinn, Fjölbrautaskólinn við Ármúla (FÁ), Fjölbrautaskóli Suðurlands (FSu), Menntaskólinn á Tröllaskaga (MTR), Menntaskólinn á Ásbrú (MÁ) og Menntaskólinn við Sund (MS). Keppt verður í þremur leikjum: CS:GO, Rocket League og Valorant.

Það eru FVA og MS sem munu mætast í fyrstu viðureign átta liða úrslitanna, en leikið verður alla miðvikudaga í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi þar til einn skóli stendur uppi sem sigurvegari þann 12. apríl næstkomandi.

FVA fór alla leið í úrslit í fyrra, en laut þar í lægra haldi gegn Tækniskólanum sem hefur unnið FRÍS bæði árin sem leikarnir hafa verið haldnir. FVA ætlar sér því örugglega að gera enn betur í ár, en leiðin er löng og fyrsta hindrun í vegi þeirra verður Menntaskólinn við Sund.






×