Altalað hefur verið lengi að DeSantis ali með sér þann draum í brjósti að verða næsti forseti Bandaríkjanna. Hann hefur þó enn ekki lýst yfir framboði opinberlega.
Washington Post hefur eftir heimildarmönnum sem standa DeSantis nærri að hann hafi sagt í einrúmi að hann ætli að bjóða sig fram. Hann lýsi líklega ekki yfir framboði fyrr en eftir að ríkisþingi Flórída verður slitið í maí.
Ríkisstjórinn heimsækir Iowa á morgun og Nevada á laugardag í tengslum við útgáfu endurminninga hans. Ríkin tvö eru á meðal þeirra sem greiða fyrst atkvæði í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar. Vongóðir frambjóðendur finna sér yfirleitt ástæðu til þess að heimsækja ríkin þegar nær dregur forvali.
Önnur vísbending um yfirvofandi framboð DeSantis er ný pólitísk aðgerðanefnd sem var stofnuð honum til stuðnings í dag. Hún nefnist „Aldrei láta undan“ (e. Never Back Down) en forráðamaður hennar er Ken Cuccinelli, fyrrverandi embættismaður í ríkisstjórn Donalds Trump. Slíkar nefndir safna fé og tala fyrir kjöri frambjóðanda en mega lögum samkvæmt ekki eiga samráð við hann.
Helst þekktur sem menningarstríðsmaður
Bjóði DeSantis sig fram finnur hann fyrir á fleti Trump sjálfan sem lýsti yfir framboði sínu strax í fyrra. Trump þykir fyrir fram sigurstranglegur en þó virðist sem að fjarað hafi undan stuðningi við hann að einhverju leyti innan Repúblikanaflokksins.
DeSantis hefur helst vakið athygli á sjálfum sér með því að heyja svokallað menningarstríð. Undir forystu hans hefur Flórída meðal annars bannað kennurum í opinberum skólum að ræða kynhneigð eða kyngervi í tímum. Gagnrýnendur laganna hafa kallað þau „Ekki segja samkynhneigður“-lögin.
Þá gengur nú ritskoðunaralda yfir skóla í ríkinu. Skólastjórnendur hafa víða gripið til þess ráðs að fjarlægja allar bækur af ótta við að þeir verði sóttir til saka komist yfirvöld að því að einhver bókanna eigi ekki erindi við nemendur af ýmsum ástæðum. Bækur sem fjalla um sögu þrælahalds og kynhneigð eru á meðal þeirra sem hafa ekki komist í gegnum nálarauga ritskoðara ríkisins.
DeSantis vakti einnig athygli þegar hann notaði opinbera fjármuni til að greiða fyrir að flytja hælisleitendur frá Texas til lítillar og velmegandi eyju í Massachusetts í fyrra.