Ábending um hellinn barst á dögunum þegar unnið var að greftri grunnar fyrir nýbyggingar við Jarðböðin í Mývatnssveit. Jarðvinnuverktaki var þar að brjóta klöpp þegar þak hellisins gaf sig og stærðarinnar niðurfall birtist skyndilega.

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að hraunhellar og virkar útfellingar af völdum jarðhita njóti verndunar samkvæmt 61. grein laga um náttúruvernd. Fram kemur að lokunin taki gildi á hádegi í dag og gildi í tvær vikur. Stefnt sé að því að endurskoða lokunina innan þess tíma.
„Á meðan lokunin er í gildi getur Umhverfisstofnun, í samráði við rekstraraðila Jarðbaðanna, veitt leyfi fyrir ferðum í hellinn sem tengjast frekari könnun hans og öðrum rannsóknum á honum, en öll önnur umferð verður óheimil.

Frá því að hellinn fannst hefur umferð um hann verið verulega takmörkuð með það að markmiði að valda sem minnstu raski á þeim jarðminjum sem þar eru að finna. Dreifing útfellinganna um hellinn er slík að erfitt er að ferðast um hann án þess að valda óafturkræfu raski á útfellingunum.
Starfsmenn verkfræðistofunnar EFLU hafa unnið að kortlagningu og skönnun hellisins, ásamt því að afmarka með böndum ákveðna leið um hellisgólfið,“ segir á vef Umhverfisstofnunar.