Á hverju ári er haldinn svokallaður Stjörnustríðsfögnuður (e. Star Wars Celebration) þar sem aðdáendur koma saman til að fagna heimi Star Wars. Undanfarin ár hefur Disney nýtt fögnuðinn til að tilkynna nýjar kvikmyndir og þætti sem eru á leiðinni.
Fleiri myndir, fleiri þættir og æsispennandi stikla
Á hátíðinni í ár var tilkynnt um þrjár nýjar kvikmyndir sem munu koma út á næstu árum.
Leikstjórinn Dave Filoni mun leikstýra kvikmynd sem brúar bilið milli upprunalega þríleiksins og nýjasta þríleiksins. Þá mun James Mangold, leikstjóri Logan og næstu myndar um Indiana Jones, leikstýra kvikmynd um fyrsta Jedi-riddarann. Að lokum mun Sharmeen Obaid-Chinoy, leikstjóri Ms. Marvel, leikstýra mynd sem spólar fimmtán ár fram í tímann frá endalokum síðasta þríleiks þar sem Rey reynir að endurreisa Jedi-regluna.
Einnig voru tilkynntar sjónvarpsseríur sem eru á leiðinni. Þar má nefna aðra seríu af þáttunum Andor, seríuna Skeleton Crew og Ahsoka sem fjallar um lærling Anakins Geimgengils. Þá var sýnd æsispennandi stikla úr þeirri síðastnefndu sem sjá má hér fyrir neðan.