Fyrsta tunglfarið í einkaeigu brotlenti Samúel Karl Ólason skrifar 27. apríl 2023 15:42 Líkan af geimfarinu Hakuto-R. Starfsmenn Ispace misstu samband við geimfarið er það átti að lenda á fjarhlið tunglsins. Talið er að það hafi orðið eldsneytislaust og brotlent á tunglinu. EPA/FRANCK ROBICHON Forsvarsmenn japanska fyrirtækisins Ispace, sem reyndu að lenda smáu geimfari á tunglinu á þriðjudaginn, segja það líklega hafa brotlent á fjarhlið tunglsins. Geimfarið hafa orðið eldsneytislaust áður en því tókst að lenda.
Vonast var til þess að Hakuto-R yrði fyrsta geimfarið í einkaeigu til að lenda á tunglinu. Til stendur að lenda öðrum geimförum á tunglinu á næsta ári og árið 2025. Geimfarinu var skotið á loft í desember frá Flórída í Bandaríkjunum og var notast við Falcon 9 eldflaug SpaceX. Geimfarið átti að lenda á tunglinu í gær. Allt var með felldu þegar geimfarið fór til lendingar og Japanar misstu samband við það. Þá var geimfarið í um níutíu metra hæð og á 33 kílómetra hraða þegar sambandið slitnaði, samkvæmt frétt SpaceFlightNow. Takeshi Hakamada, forstjóri Ispace, sagði á blaðamannafundi að ekki liggi fyrir á hve miklum hraða geimfarið var þegar það brotlenti og ástand þess liggi ekki fyrir, þar sem samband hafi aldrei náðst við það aftur, samkvæmt frétt Japan Times. Áhugsamir geta kynnt sér Hakuto-R frekar með myndabndinu hér að neðan. Um borð í Hakuto-R var meðal annars lendingarfar frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem kallast Rashid. Hann átti að nota til að rannsaka nánasta umhverfi Hakuto-R og miðla upplýsingum aftur til jarðarinnar.
Japan Tunglið Geimurinn Mest lesið Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Einhliða vopnahlé Rússa hafið Erlent „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ Innlent Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Innlent Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Innlent „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Innlent Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Innlent „Þetta er svona eitraður kokteill” Innlent Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Innlent „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ Innlent Fleiri fréttir Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Sjá meira