Innlent

„Ís­lenskir bankar eru með belti, axla­bönd, sikrisnælur og hjálma“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Bæði almenningur og fagfjárfestar fá að kaupa í næsta hlutafjárútboði á Íslandsbanka. Snorri Jakobsson hagfræðingur segir mikilvægt að flýta sér hægt í fyrirhuguðu útboði. Hann segir íslenska banka með öruggari fjárfestingarkostum.
Bæði almenningur og fagfjárfestar fá að kaupa í næsta hlutafjárútboði á Íslandsbanka. Snorri Jakobsson hagfræðingur segir mikilvægt að flýta sér hægt í fyrirhuguðu útboði. Hann segir íslenska banka með öruggari fjárfestingarkostum. Vísir

Bæði almenningur og fagfjárfestar munu geta keypt í Íslandsbanka í fyrirhugðu útboði stjórnvalda á eignarhlut í bankanum. Sérfræðingur á fjármálamarkaði ráðleggur ríkisstjórninni að flýta sér hægt og hafa upplýsingagjöf í lagi. 

Önnur umræða um frumvarp um sölu ríkisins á eignarhlut í Íslandsbanka fór fram á Alþingi í dag. Þar var   breytingartillaga fjármálaráðherra tekin fyrir og þriðju tilboðsbókinni fyrir fagfjárfesta bætt við. Atkvæðagreiðslu var frestað að lokinni umræðu í dag. 

Samkvæmt núverandi frumvarpi verður salan á bankanum því þrískipt eða fyrir almenning, lögaðila og fagfjárfesta en alls á ríkið ríflega fjörutíu prósent í bankanum.

Fjármálaeftirlitið hefur ekki lokið rannsókn á síðasta útboði

Í síðustu viku var auglýst eftir söluaðilum vegna fyrirhugaðs útboðs og lauk fresti til að sækja um á föstudaginn. Verið er að vinna úr umsóknum samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 

Fjármálaeftirlitið hefur hins vegar enn ekki lokið að fullu rannsókn á söluaðilum sem seldu í síðasta útboði á Íslandsbanka samkvæmt upplýsingum fréttatofu en sú athugun hófst fyrir tæpum þremur árum.

Fjámálaráðherra sagði um helgina að til stæði að selja bankann á næstu vikum. 

Mikilvægt að læra af fyrri mistökum

Snorri Jakobsson hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital  segir mikilvægt að flýta sér hægt og læra af fyrri mistökum varðandi sölu á eignarhlut ríkisins í bankanum.

„Það þarf að undirbúa söluna vel. Alltaf þegar verið er að vinna svona útboð hratt er hætta á smærri mistökum. Það gerist þegar tíminn er skammur og allir að vinna af miklu kappi. Það er betra að taka lengri tíma og vanda sig betur. Sömuleiðis þarf að hafa upplýsingagjöfina miklu betri en hún var í síðasta útboði. Það þarf því ekki að drífa að selja bankann á næstu vikum. Það er betra að gefa sér tíma og selja hann eftir fjórar til fimm vikur,“ segir Snorri.

Örugg fjárfesting

Snorri telur að fólk hafi mikinn áhuga á að kaupa í bankanum því hlutabréf í honum séu með öruggari fjárfestingum.  

„Íslenskir bankar eru með belti axlabönd, sikrisnælur og hjálma. Þeir eru með alla öryggisventla sem til eru í samanburði við banka erlendis. Ég held að það sé mikill áhugi á að kaupa í bankanum í næsta útboði,“ segir Snorri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×