Leikfélag Sólheima er eitt af öflugustu áhugaleikfélögum landsins þar sem gleði og jákvæðni er alltaf númer 1, 2 og 3. Búið er að sýna nokkrar sýningar af nýjasta verkinu og síðustu sýningarnar verða um helgina og mánudaginn 1. maí.
„Það er yndislegt að starfa hérna og vera hérna og þessir leikarar eru hreinir snillingar. Þeim líður alltaf vel, þeir eru ánægðir og gefa af sér,“ segir Magnús J. Magnússon, leikstjóri leikritsins.
“Verkið heitir „Skógarbrúðkaup“ og fjallar um prins, sem kynnist stúlku á balli en hún hverfur rétt fyrir miðnætti og skógurinn hennar verður eftir. Þetta er stef, sem einhverjir kannast kannski eitthvað við en þetta er svona samkrull úr allskonar ævintýrum, sem gengur út á það að bjóða öllum skógarfígúrunum í brúðkaup öskubusku og prinsins,“ segir Hallbjörn Valgeir Rúnarsson, leikari og umsjónarmaður tónlistar í leikritinu.

„Það er mjög gaman að taka þátt í þessu, ég leik Héraðstubb bakara,“ segir Guðlaug Elísabet, heimilismaður á Sólheimum.

„Við er að leika Kasper, Jesper Jónatan. Þetta er mjög skemmtilegt leikrit, mikið spilað og mikið sungið og þetta er mjög gaman og við gerum alveg þvert öfugt við það sem Soffía biður okkur um að gera en við viljum bara rokkin ról, við viljum bara rokka,“ segja bræðurnir Kasper, Jesper og Jónatans, sem þrír af heimilismönnunum á Sólheimum leika listavel.
Síðustu sýningarnar verða á eftirtöldum dögum
Laugardaginn 29.04 kl. 14.00
Sunnudaginn 30.04 kl. 14.00
Mánudaginn 01.05 kl. 14.00
