Leikhús
1 2 3 4 5 6 … 29 ›
Segir frumburðinn með nefið hans pabba Vala Kristín Eiríksdóttir, leikkona og handritshöfundur, og Hilmir Snær Guðnason leikari eiga von á sínu fyrsta barni saman eftir nokkrar vikur. Vala birti mynd af Hilmi með sónarmynd upp við nefið á sér og segir barnið ekki vera með nefið frá sér. Lífið 11.4.2025 11:30
Söngnemendur á Hvolsvelli með Kabarett Mikil spenna og eftirvænting er á Hvolsvelli og í sveitunum þar í kring því söngnemendur í Tónlistarskóla Rangæinga hafa æft söng kabarett síðustu vikurnar, sem sýndur verður í Hvolnum á Hvolsvelli. Átján ára aldurstakmark er á kabarettinn. Lífið 9.4.2025 21:03
Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Leikkonan Katrín Halldóra hefur nú bæst við í leikarahóp á sýningunni Þetta er Laddi. Hún tekur við keflinu af Völu Kristínu sem er á leið í fæðingarorlof en hún á von á frumburði sínum með leikaranum Hilmi Snæ. Lífið 9.4.2025 13:02
„Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ „Það er gaman að segja frá því að við urðum óléttar á svipuðum tíma en okkar listræna samstarf blómstraði á meðgöngutímanum og í fæðingarorlofinu. Krakkarnir okkar eru rúmlega tveggja ára í dag,“ segir Rakel Björk Björnsdóttir, leikkona og meðlimur í sviðslistahópsins Raddbandið ásamt Auði Finnbogadóttur og Viktoríu Sigurðardóttur. Lífið 8.4.2025 07:03
Rislítil ástarsaga Sýningin Fjallabak byggir á hinni stórkostlegu bíómynd Brokeback Mountain sem sló í gegn árið 2005 með stórleikurunum Heath Ledger og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum. Myndin tapaði í baráttunni um Óskarinn fyrir myndinni Crash (sem er flestum gleymd) en Brokeback Mountain hefur lifað áfram bæði sem ópera (já, sem ópera) og nú sem leiksýning. Gagnrýni 3.4.2025 07:12
Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Prúðbúnir listunnendur fjölmenntu í Borgarleikhúsinu í vikunni þegar nýjasta verk Íslenska dansflokksins, Hringir Orfeusar og annað slúður, var frumsýnt. Auk frumsýningarinnar tók Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, nýskipaður listdansstjóri, formlega við embætti af Ernu Ómarsdóttur sem er jafnframt höfundur verksins. Lífið 1.4.2025 13:21
Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Verkið Fjallabak var frumsýnt í Borgarleikhúsinu síðastliðið föstudagskvöld fyrir troðfullum sal gesta. Verkið byggir á samnefndri Pulitzerverðlauna smásögu Annie Proulx og síðar gerði kvikmyndaleikstjórinn Ang Lee kvikmyndina Brokeback Mountain eftir sögunni. Í pistlinum má sjá stiklu úr leikritinu. Menning 1.4.2025 11:31
Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Það var líf og fjör á frumsýningu í Borgarleikhúsinu þar sem sjóðheitar stjörnur landsins komu saman á frumsýningu Fjallabaks þar sem Björn Stefánsson og Hjörtur Jóhann Jónsson fara með hlutverk kúreka sem verða óvænt ástfangnir. Menning 31.3.2025 20:03
Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Viðburðarík vika er nú að baki þar sem Edduverðlunin, árshátíðir stórfyrirtækja og önnur veisluhöld vöktu athygli. Íslendingar eru þó alltaf á faraldsfæti og var fólk ýmist að sleikja sólina við sundlaugarbakkann eða spóka sig um evrópskar stórborgir. Lífið 31.3.2025 10:48
Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Lovísa Ósk Gunnarsdóttur hefur verið skipuð í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins. Logi Einarsson, M-menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skipað hana í embættið frá og með 1. ágúst næstkomandi. Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að alls hafi borist átta umsóknir um starfið. Menning 27.3.2025 13:51
Glanni glæpur og íþróttaálfurinn í Keflavík Glanni glæpur, Stína símalína, Nenni Níski, Siggi sæti, Halla hrekkjusvín, bæjarstjórinn og sjálfur íþróttaálfurinn er nú mætt til Keflavíkur þar sem leikritið um Glanna glæp í Latabæ er sýnt í Frumleikhúsinu við góðar viðtökur. Lífið 22.3.2025 20:04
Leikaraverkfalli aflýst Kjarasamningar tókust á milli leikara og dansara við Leikfélag Reykjavíkur seint í gærkvöldi. Ekki þarf að aflýsa neinum sýningum hjá Borgarleikhúsinu. Innlent 19.3.2025 09:38
Hefur tröllatrú á að samningar náist svo „Ladderíið“ geti haldið áfram Leikstjóri sýningarinnar Þetta er Laddi, í Borgarleikhúsinu, segir tap í kortunum fyrir Leikfélag Reykjavíkur verði ekki samið í kjaradeilu við leikara. Boðuð verkföll hefjast á fimmtudag og falla á sex sýningar Ladda. Innlent 16.3.2025 21:02
„Stjórn Leikfélagsins hefur fullkomlega brugðist“ Formaður Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks (FÍL) segir stjórn Borgarleikhússins hafa brugðist sviðslistafólki. Leikarar og dansarar við leikhúsið hafa verið kjarasamningslausir í fjórtán mánuði og ekkert virðist ganga í viðræðunum. Innlent 16.3.2025 13:20
Tvær miðaldra: Þekktust ekkert en láta nú drauminn rætast saman Auðbjörg Ólafsdóttir og Sóley Kristjánsdóttir eru miðaldra konur sem þekktust ekkert en áttu sama drauminn. Draumurinn var að stíga á svið sem uppistandari. Þær létu hann báðar rætast á afmælinu sínu og eftir að hafa kynnst í gegnum sameiginlegar vinkonur ætla þær að slá aftur til í Tjarnarbíói um helgina. Lífið 14.3.2025 16:30
Egill Heiðar ráðinn Borgarleikhússtjóri Egill Heiðar Anton Pálsson hefur verið ráðinn leikhússtjóri Borgarleikhússins. Þetta herma heimildir fréttastofu. Hann tekur við starfinu af Brynhildi Guðjónsdóttur sem sagði starfi sínu lausu í febrúar. Innlent 14.3.2025 15:53
Segir samningsviljann hjá leikfélaginu engan Formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum (FÍL) segir samningsvilja Leikfélags Reykjavíkur í yfirstandandi kjaraviðræðum engan. Leikarar séu miður sín yfir stöðunni en sjái ekki aðra kosti. Innlent 14.3.2025 13:25
Skálað fyrir skíthræddri Unni Það var blásið til heljarinnar teitis í Þjóðleikhúskjallaranum síðastliðið laugardagskvöld þegar uppistandið Skíthrædd, í söngleikjaformi, eftir Unni Elísabetu var loksins frumsýnt. Salurinn var í trylltu stuði. Menning 12.3.2025 20:57
Leikarar og dansarar á leið í verkfall Leikarar og dansarar í Leikfélagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu eru á leið í verkfall eftir að kjaradeilum var lýst sem áranguslausum. Verkföllin falla á „stóra sýningardaga“ en ný sýning um Ladda kemur hvað verst út. Innlent 12.3.2025 16:50
Stormur fellur á prófinu Stormur er nýr íslenskur söngleikur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og tónlistarkonuna Unu Torfa. Þetta er sýning sem á höfða til ungs fólks og fjalla um veruleika þeirra. Þjóðleikhúsið teflir djarft því í aðalhlutverki er ung söngkona án reynslu af leik á stóra sviðinu og í öðrum hlutverkum eru tiltölulega nýútskrifaðir leikarar úr Listaháskólanum. Þessi tilraun er djörf en niðurstaðan því miður nokkuð fyrirsjáanleg – með hóp af byrjendum á leiksviði er byrjendabragur á sýningunni. Gagnrýni 12.3.2025 07:00
Leiksigur Ladda Hver er Laddi? Hver er maðurinn á bak við grímuna? Á bak við persónurnar sem eru löngu orðin hluti af þjóðarvitund Íslendinga? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem stórsýningin Þetta er Laddi reynir að svara í gegnum leik, dans, söng og grín. Gagnrýni 10.3.2025 08:00
Fullt hús og mikið fjör á frumsýningu Þetta er Laddi Sýningin Þetta er Laddi var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í gær fyrir fullu húsi. Lífið 8.3.2025 18:00
Gleði þegar Unnur og Una frumsýndu loksins Storm Söngleikurinn Stormur eftir þær Unni Ösp og Unu Torfa var frumsýndur með pompi og prakt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hátíðarstemning var í loftinu og eftirvæntingin mikil. Lífið 7.3.2025 14:00
Anna Kristín Arngrímsdóttir er látin Leikkonan Anna Kristín Arngrímsdóttir er látin 76 ára að aldri. Anna Kristín fæddist þann 16. júlí 1948 á Böggvistöðum í Svarfaðardal og var hún dóttir Kristjönu Margrétar Sigurpálsdóttur og Arngríms Stefánssonar. Innlent 5.3.2025 21:20
Elísabet fær uppreist æru Innkaupapokinn er frekar látlaust heiti á tilfinningaþrungnu og litríku leikverki sem byggir á gömlu leikriti Elísabetar Jökulsdóttur – Mundu töfrana. Leikritið gengur í endurnýjun lífdaga í samstarfi við leikhópinn Kriðpleir. Áhorfendur fylgjast með glímu leikhópsins við að finna leiðina í gegnum völundarhúsið sem leiktexti Elísabetar er en í seinni hluta sýningarinnar er leikritið sjálft sett á svið. Afraksturinn af þessu sérstaka samvinnuverkefni er leikhúskvöld sem líður manni seint úr minni. Gagnrýni 5.3.2025 07:03
„Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ „Eftir að ég var búinn að flytja þetta þá hugsaði ég: „Er ég kannski að segja of mikið?“ segir Guðmundur Einar sem ýtti nýverið úr vör sinni allra fyrstu uppistandssýningu, sem ber heitið Lítill töffari. Guðmundur opnar sig meðal annars upp á gátt um eigið óöryggi, tilraunir hans og kærustu hans til þess að eignast barn og svo glænýtt foreldrahlutverk en óhætt er að segja að hann hefji sýninguna á alvöru sjónarspili. Menning 2.3.2025 10:02
Unnur Eggerts, Væb og Ragnhildur Steinunn létu sig ekki vanta Nemendur Verzlunarskóla Íslands frumsýndu söngleikinn Stjarnanna borg fyrir fullum sal síðastliðið mánudagskvöld. Verkið er byggt á dans og söngvamynd frá 2016 þar sem Ryan Gosling og Emma Stone fara með aðalhlutverk. Lífið 1.3.2025 20:02
Ævar vísindamaður í miðaldrakrísu Áður en Ævar Þór Benediktsson varð landsþekktur sem Ævar vísindamaður útskrifaðist hann sem leikari úr Listaháskóla Íslands. Ævar var meira að segja nokkuð góður leikari þrátt fyrir að frægðarsól hans hafi ekki risið hæst á þeim vettvangi. Nei, Ævar er frægastur hjá börnum og foreldrum landsins fyrir fjölmargar bækur og þætti um vísindi og gagn þeirra í samfélaginu. Gagnrýni 20.2.2025 09:45
Stjarnanna borg á fjalirnar hjá Verzló Verzlunarskóla Íslands er þekktur fyrir að setja upp mjög svo metnaðarfullar sýningar og í ár stýra fyrrum Verslingarnir Tómas Arnar Þorláksson og Mikael Emil Kaaber Stjarnanna borg sem er byggt á þekktri dans og söngvamynd frá árinu 2016. Lífið 19.2.2025 10:30
Barnabarn Helgu Steffensen blæs lífi í Brúðubílinn Barnabarn Helgu Steffensen ætlar að endurvekja Brúðubílinn eftir fimm ára dvala leikhússins. Það er allt til reiðu hjá brúðuleikhússtjóranum, það vantar aðeins eitt, sjálfan bílinn. Lífið 16.2.2025 19:22