Nikolaj jafnaði markamet Heimis Karls Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. maí 2023 12:31 Heimir Karlsson og Nikolaj Hansen deila nú markameti Víkings í efstu deild. vísir/vilhelm/hulda margrét Nikolaj Hansen jafnaði markamet Víkings í efstu deild þegar hann skoraði í sigri liðsins á HK í gær. Víkingar gerðu góða ferð í Kórinn í gær og unnu 1-2 sigur á HK-ingum. Víkingur hefur unnið alla átta leiki sína í Bestu deildinni í sumar og aðeins fengið á sig tvö mörk. Nikolaj skoraði annað mark Víkings á 72. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Pablos Punyed. Þetta var 37. mark Danans fyrir Víking í efstu deild. Hann jafnaði þar með markamet Víkings í efstu deild sem Heimir Karlsson hefur átt í tæplega fjörutíu ár. Heimir skoraði 37 mörk í 116 leikjum fyrir Víking í efstu deild. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu 1981 og 1982. Niko hefur nú skorað 37 deildarmörk fyrir Víking. Þar með er hann kominn upp að hlið Heimis Karls yfir markahæstu Víkingana. Markahæstir í sögu Víkings (efsta deild)Nikolaj Hansen 3 7 Heimir Karlsson 3 7 Lárus Guðmundsson 2 5 Atli Einarsson 2 5 #Bestadeildin pic.twitter.com/sn8RLJcyhW— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) May 21, 2023 Nikolaj gekk í raðir Víkings frá Val um mitt sumar 2017. Hann var markakóngur og valinn leikmaður ársins þegar Víkingur vann tvöfalt 2021. Fyrir þetta tímabil var Nikolaj gerður að fyrirliða Víkings. Markahæstu leikmenn Víkings í efstu deild Nikolaj Hansen - 37 mörk Heimir Karlsson - 37 mörk Lárus Guðmundsson - 25 mörk Atli Einarsson - 25 mörk Gunnar Örn Kristjánsson - 22 mörk Óttar Magnús Karlsson - 21 mark Guðmundur Steinsson - 21 mark Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira
Víkingar gerðu góða ferð í Kórinn í gær og unnu 1-2 sigur á HK-ingum. Víkingur hefur unnið alla átta leiki sína í Bestu deildinni í sumar og aðeins fengið á sig tvö mörk. Nikolaj skoraði annað mark Víkings á 72. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Pablos Punyed. Þetta var 37. mark Danans fyrir Víking í efstu deild. Hann jafnaði þar með markamet Víkings í efstu deild sem Heimir Karlsson hefur átt í tæplega fjörutíu ár. Heimir skoraði 37 mörk í 116 leikjum fyrir Víking í efstu deild. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu 1981 og 1982. Niko hefur nú skorað 37 deildarmörk fyrir Víking. Þar með er hann kominn upp að hlið Heimis Karls yfir markahæstu Víkingana. Markahæstir í sögu Víkings (efsta deild)Nikolaj Hansen 3 7 Heimir Karlsson 3 7 Lárus Guðmundsson 2 5 Atli Einarsson 2 5 #Bestadeildin pic.twitter.com/sn8RLJcyhW— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) May 21, 2023 Nikolaj gekk í raðir Víkings frá Val um mitt sumar 2017. Hann var markakóngur og valinn leikmaður ársins þegar Víkingur vann tvöfalt 2021. Fyrir þetta tímabil var Nikolaj gerður að fyrirliða Víkings. Markahæstu leikmenn Víkings í efstu deild Nikolaj Hansen - 37 mörk Heimir Karlsson - 37 mörk Lárus Guðmundsson - 25 mörk Atli Einarsson - 25 mörk Gunnar Örn Kristjánsson - 22 mörk Óttar Magnús Karlsson - 21 mark Guðmundur Steinsson - 21 mark
Nikolaj Hansen - 37 mörk Heimir Karlsson - 37 mörk Lárus Guðmundsson - 25 mörk Atli Einarsson - 25 mörk Gunnar Örn Kristjánsson - 22 mörk Óttar Magnús Karlsson - 21 mark Guðmundur Steinsson - 21 mark
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira