Arion banki hækkar vextina Atli Ísleifsson skrifar 8. júní 2023 09:57 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm Arion banki hækkar vexti sína á inn- og útlánum í dag í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í þarsíðustu viku um hækkun stýrivaxta um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans fóru þar úr 7,5 prósentum í 8,75. Fram kemur á vef Arion banka að breytilegir vextir þegar veittra lána til einstaklinga hækki þrjátíu dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán sem taki gildi 11. júní. Vextir innlána taki breytingum samdægurs og öll ný útlán beri nýju vextina. „Breytingarnar eru eftirfarandi: Óverðtryggð íbúðalán Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,05 prósentustig og verða 10,39% Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,10 prósentustig og verða 9,30% Verðtryggðir vextir íbúðalána haldast óbreyttir. Kjörvextir Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,25 prósentustig. Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,25 prósentustig Bílalán Kjörvextir bílalána hækka um 1,25 prósentustig. Innlán Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,60 prósentustig og sparnaðarreikninga um allt að 1,25 prósentustig. Vextir verðtryggða sparnaðarreikningsins Framtíðarreikningur 0-18 ára hækka um 0,25 prósentustig og verða 1,25%. Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar. Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar,“ segir í tilkynningunni.
Arion banki Íslenskir bankar Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Landsbankinn fyrstur til eftir stýrivaxtahækkun Landsbankinn hefur breytt vöxtum sínum fyrstur bankanna í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. 31. maí 2023 17:02 Mest lesið Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Einsleitni er ekki málið: „Ætlum við að gera þetta aftur?“ Atvinnulíf Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Viðskipti innlent Milljarður í afgang í Garðabæ Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Milljarður í afgang í Garðabæ Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Besta rekstrarár frá opnun Hörpu Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar „Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Sjá meira
Landsbankinn fyrstur til eftir stýrivaxtahækkun Landsbankinn hefur breytt vöxtum sínum fyrstur bankanna í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. 31. maí 2023 17:02