Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, segir fyrstu helgina hafa verið annasama en lærdómsríka.
„Bílstjórarnir ótrúlega fljótir að grípa hugbúnaðinn og notendurnir líka, sérstaklega notendurnir,“ sagði Sæunn.
En fengu allir far sem vildu?
„Nei, alls ekki. Við náðum aðeins að sinna sirka 34% þeirra sem óskuðu eftir ferð og bara í Hopp-appinu um helgina þannig að þetta er risastórt mál sem þarf að ræða því við erum að horfa á að 66% af notendum Hopp fengu ekki ferðina sína um helgina.“
Í heild bárust rúmlega þrettán hundruð beiðnir um far með Hopp. Sæunn segir létti að vera komin með tölur í hendurnar sem sýni svart á hvítu hver staðan er á markaðnum en að leiðinlegt sé að hafa ekki getað annað eftirspurn.
„Þessi markaður er ekki í jafnvægi. Við þurfum fleiri bílstjóra, vegna þess að ef við hefðum haft fleiri bílstjóra þá hefðu fleiri getað fengið ferðina sína með Hopp-appinu,“ sagði Sæunn.
Vísir sagði frá því í dag að Samgöngustofa hygðist ekki hlutast til um starfsreglur einstakra leyfishafa á leigubílamarkaði en stjórnendur Hreyfils hafa bannað leigubílstjórum sínum að skrá sig hjá Hopp.
Sjá nánar: Munu ekki bregðast við reglum Hreyfils um akstur með Hopp
„Við erum ekki komin á markað til að stela einhverjum bílstjórum og það sem er kannski mikilvægast að taka fram er að leigubílstjórar eru bara sjálfstætt starfandi. Þetta eru bara lítil fyrirtæki og við erum að koma inn með nýja tekjuleið, tekjustofn og nýjan markað því við vitum hvernig notendurnir okkar haga sér. Þeir vilja hraðan og góðan hugbúnað og Hopp-appið er í rauninni alltaf að „besta“ ferðina með nýtingu þannig að sá sem keyrir með Hopp-appinu fær svo mikla nýtni.“
Óhætt er að segja að ekki allir hafi fagnað aukinni samkeppni með tilkomu Hopps á markað.
„Þetta er ekkert einhver barátta á milli félaga. Það er bara pláss fyrir okkur öll enda segja tölurnar okkur það núna - en ekki tilfinningar - hvernig markaðurinn er.“