Sumarið 2022 það heitasta síðan 1880
Funheit hitabylgja réði ríkjum víðast hvar hér á Spáni í vikunni og minnti illþyrmilega á sumarið í fyrra, sem var það heitasta í Evrópu síðan mælingar hófust árið 1880. Og margir óttast að enn sé það versta eftir.
Í þessari sömu viku voru niðurstöður rannsóknar á dauðsföllum í 35 ríkjum í Evrópu vegna hita sumarið 2022 kynntar í tímaritinu Nature Medicine. Þar kemur fram að rekja megi 61.672 dauðsföll beint til mikils hita. Það er rúmlega 40% fleiri dauðsföll en voru að meðaltali á árunum 2015 til 2021 rakin til hás hita.
Yfirvöld fljóta sofandi að feigðarósi
Höfundar skýrslunnar leggja áherslu á að þessi rannsókn sýni hve knýjandi það er fyrir yfirvöld í hverju ríki álfunnar og Evrópusambandið að grípa til róttækra aðgerða vilji þau stöðva þessa geigvænlegu þróun en spár vísindamanna til næstu ára gefi ekki tilefni til bjartsýni.
Flest dauðsfallanna áttu sér stað á Ítalíu, 18.010 og á Spáni, 11.324, þannig að um helmingur dauðsfalla vegna hita í Evrópu átti sér stað í þessum tveimur Miðjarðarhafslöndum. Athygli vekur að í skýrslunni kemur fram að tvö dauðsföll á Íslandi í fyrra megi rekja til hita.
Svona háar tölur hafa ekki sést síðan sumarið 2003, en það var óvenju heitt og það sumar er talið að tæplega 72.000 manns hafi dáið vegna hita í Evrópu.
Eldra fólk verður aðallega hitanum að bráð
Langflestir þeirra sem létust vegna hita eru í elstu aldurshópunum og einungis 4.822 dauðsföll hjá fólki undir 65 ára aldri má rekja til hita. Þá dóu fleiri konur en karlar. Verst var ástandið á milli 11. júlí og 14. ágúst, en þá voru skæðar hitabylgjur tíðar og víða í álfunni. Það er einmitt það tímabil sem við erum að skríða inn í núna og því viðbúið að margir krossi fingur og biðji um örlítið meiri andvara þessi dægrin.