Met í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar Heimir Már Pétursson skrifar 11. júlí 2023 20:22 Nú sér loks fyrir endann á stækkun Sundahafnar á Ísafirði. Stærstu skemmtiferðaskipin hafa mörg hætt við að koma vegna framkvæmdanna. Stöð 2/Arnar Algengt er að ferðamenn sem heimsækja Ísafjörð á góðum degi séu nærri tvöfalt fleiri en fólkið sem býr í bænum. Stærstu skemmtiferðaskipin hafa þó afbókað komu sína á þessu sumri vegna tafa á stækkun Sundahafnar.
Eftir nokkrar tafir sér loks fyrir endann á lengingu hafnarkantsins í Sundahöfn úr 290 metrum í 600 metra svo hægt verði að taka á móti fleiri skemmtiferðaskipum í einu. Hilmar Kristjánsson Lyngmo segir að fyrir tíu árum hefði gott að fá tæplega fimmtíu skemmtiferðarskip til Ísafjarðar en þeim hefði fjölgað hratt á undanförnum árum. Hilmar Kristjánsson Lyngmo hafnarstjóri Ísafjarðarhafna segir tekjur af skemmtiferðaskipum vera á bilinu 60-70 prósent af tekjum hafnanna.Stöð 2/Arnar „Já, og bara síðan í fyrra. Það komu 119 skip í fyrra og það eru bókaðar 206 komur í ár. Það er eitthvað búið að afbóka reyndar út af hafnarframkvæmdunum. Þannig að ég veit ekki hver endanleg tala verður,“ segir hafnarstjórinn. Það væru aðallega allra stærstu skipin sem hefðu hætt við að koma. Heildaríbúafjöldi Ísafjarðarbæjar er rúmlega 3.800 manns að meðtöldum nálægum byggðakjörnum. Það munar því um það þegar stór skip með fjölda farþega koma í bæinn. „Menn verða alveg varir við þegar það koma sex þúsund manns í bæinn, á finnst fyrir því. En mikið af þessu fólki fer í rútuferðir bæði aðDynjanda og Ósvör og siglingar inn í Vigur. Þannig að þetta dreifist. Ég myndi segja að 60 til sjötíu prósent farþeganna fari í skipulagðar ferðir. Hinir eru röltandi um bæinn að skoða sig um,“ segir Hilmar. Í Sundahöfn hittum við farþega á öllum aldri en þennan daginn voru Bandaríkjamenn helst áberandi. Ein eldri kona segist hafa verið að slappa af í Barcelona þegar hún ákvað að stökkva á skip til Íslands. En Page Parish frá Kaliforníu var mættur með 17 ára dóttur sinni og fjölskyldu. Page Parish frá Kaliforníu lét draum 17 ára dóttur sinnar um að koma til Íslands verða að veruleika.Stöð 2/Arnar „Þetta er magnað. Fallegt landslag, gróðurinn, þetta er ótrúlegt. Fallegur sólríkur dagur þótt ég viti að veðrið hér getur breyst hvenær sem er en þetta er fallegasti dagurinn sem við höfum fengið,“ segir herra Parish. Hvað fékk þig til að fara í þessa ferð? „Þetta er útskriftarferð dóttur minnar úr menntaskóla og af öllum stöðunum sem hún gat valið vildi hún koma hingað,“ segir hann léttur í bragði. Regan dóttir hans viðurkenndi að hún hefði ekki vitað mikið um Ísland annað en að Björk væri þaðan, en almennt væri hún hrifin af framandi landslagi. Regan Parish langaði mikið að koma til Íslands þótt hún vissi lítið annað um landið en að Björk væri þaðan.Stöð 2/Arnar „Ég laðast að landslaginu og náttúrunni. Ég hef gaman af að ganga og það er það sem við ætlum að gera í dag. Mér finnst það frábært að fólk geti numið land, sest að og fundið sína eigin leið til að lifa af,“ segir Regan. Hafnarstjórinn er ánægður með sumarið. Hvað er þetta margt fólk sem er að koma til Ísafjarðar? „Miðað við bókanir eru það svona 150 þúsund farþegar sem koma hingað í sumar.“ Það væri miðað við að skipin væru fullbókuð, sem þau væru ekki alltaf. En 150 þúsund manns er fleira fólk en býr í höfuðborginni. Hafnarsjóður hlýtur að fitna á þessu? „Sextíu til sjötíu prósent af tekjum hafnarinnar eru skemmtiferðaskip. Það munar mikið um það,“ segir Hilmar Kristjánsson Lyngmo.
Ísafjarðarbær Skemmtiferðaskip á Íslandi Ferðamennska á Íslandi Hafnarmál Tengdar fréttir Einhyrningsfyrirtæki sem vann gullið á ólympíuleikum efnahagslífsins Fyrrverandi forseti Íslands segir Kerecis hafa unnið gullverðlaunin á ólympíuleikum efnahagslífs heimsins með 180 milljarða króna sölu þess til alþjóða læknavörufyrirtækisins Coloplast í dag. Á örfáum árum hefur Kerecis vaxið í að vera eitt verðmætasta fyrirtæki Íslandssögunnar, tvöfalt verðmætara en Icelandair og Eimskip. 7. júlí 2023 19:20 Fleiri farþegar skemmtiferðaskipa hefja eða ljúka ferðinni í Reykjavík Mun fleiri farþegar skemmtiferðaskipa hefja eða enda ferð sína í Reykjavík en áður og skila því meiri tekjum til íslenskra þjónustufyrirtækja. Byggja á nýja fimm þúsund fermetra móttökumiðstöð í Sundahöfn á næstu tveimur árum. 12. apríl 2023 19:31 Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Erlent Fleiri fréttir „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Boða til blaðamannafundar Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Hellti kveikjarabensíni yfir mann og hótaði að kveikja í Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Banaslys á Þingvallavegi Samræði við þrettán ára nauðgun eftir allt saman Sjá meira
Einhyrningsfyrirtæki sem vann gullið á ólympíuleikum efnahagslífsins Fyrrverandi forseti Íslands segir Kerecis hafa unnið gullverðlaunin á ólympíuleikum efnahagslífs heimsins með 180 milljarða króna sölu þess til alþjóða læknavörufyrirtækisins Coloplast í dag. Á örfáum árum hefur Kerecis vaxið í að vera eitt verðmætasta fyrirtæki Íslandssögunnar, tvöfalt verðmætara en Icelandair og Eimskip. 7. júlí 2023 19:20
Fleiri farþegar skemmtiferðaskipa hefja eða ljúka ferðinni í Reykjavík Mun fleiri farþegar skemmtiferðaskipa hefja eða enda ferð sína í Reykjavík en áður og skila því meiri tekjum til íslenskra þjónustufyrirtækja. Byggja á nýja fimm þúsund fermetra móttökumiðstöð í Sundahöfn á næstu tveimur árum. 12. apríl 2023 19:31