Svo hljóðar bráðabirgðaákvörðun stofnunarinnar sem telur að háttsemi Hreyfils hafi verið til þess fallin að hindra innkomu nýs keppinautar á markaðinn, neytendum til tjóns. Þá hafi aðgerðirnar viðhaldið þeim takmörkunum sem nýjum lögum um leigubifreiðaakstur væri ætlað að uppræta.
Að sögn stofnunarinnar hefur Hreyfill frá því að Hopp hóf starfsemi á leigubílamarkaði í vor haft reglur í samþykktum sínum og stöðvarreglum sem útilokuðu félagsmenn frá því að nýta sér aðra þjónustu á markaði sem þeim stæði til boða.
Hafi virt fyrri tilmæli að vettugi
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Samkeppniseftirlitið hefur afskipti af Hreyfli en samsvarandi háttsemi var tekin til skoðunar árið 2020 í tengslum við félagið Drivers ehf.
„Beindi Samkeppniseftirlitið þá tilmælum til Hreyfils að láta af háttseminni, sem bryti líklega gegn 11. gr. samkeppnislaga. Athugun þessa máls hefur leitt í ljós að Hreyfill hefur virt fyrrgreind tilmæli Samkeppniseftirlitsins að vettugi,“ segir á vef stofnunarinnar.
Hreyfill hafi lengi verið stærsta leigubifreiðastöð landsins með flesta leigubifreiðastjóra og „gríðarlegan efnahagslegan styrk“ umfram keppinauta.
Samkeppniseftirlitið beinir þeim fyrirmælum til Hreyfils að gera breytingar á reglum og samþykktum sem hamli eða banni leigubílstjórum að nýta jafnframt þjónustu annarra aðila. Þá skuli tilkynna leigubílstjórum sem keyra fyrir Hreyfil um niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og að þeim sé heimilt að nýta þjónustu annarra aðila.
Framkvæmdastjórar Hreyfils og Hopp leigubíla hafa deilt um það á opinberum vettvangi hvort ný lög um leigubílaakstur banni bílstjórum að vera skráðir á fleiri en einni leigubifreiðastöð.
Samgöngustofa hefur eftirlit með því hvort starfsemi leigubifreiðaleyfishafa sé í samræmi við lög og reglugerðir. Stofnunin hefur ekki tekið afstöðu í máli Hreyfils og Hopp leigubíla og sagt að hún hlutist ekki til um starfsreglur einstakra leyfishafa á leigubílamarkaði á meðan þær rúmist innan laga og reglna.
Fréttin hefur verið uppfærð.